Atskákkeppni taflfélaga 2026 fer fram laugardaginn 14. nóvember. Mótshaldari er Taflfélag Reykjavíkur. Mótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 13:30.
Tefldar verða sjö umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt verður með tímamörkunum 10+5, 10 mínútur á mann á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt verður á 6 borðum auk varamanna. Varamaður kemur alltaf inn á neðsta borði. Hvert lið má senda allt að 3 sveitir til leiks.
Þátttakendur verða að tefla fyrir það félag sem þeir eru skráðir í samkvæmt félagagrunni íslenskra skákmanna. Skákmenn sem ekki eru skráðir í félag mega hins vegar taka þátt í mótinu með einhverju félagi hvort sem þeir eru með stig eða ekki.
Hægt er að hafa 0.-4. varamenn. Halda þarf styrkleikaröðinni og varamenn koma alltaf í röð á eftir aðalmönnum. Skákmenn flakka ekki milli sveita (A-B, B-C) heldur er sami hópurinn í hverri sveit. Þó verður hægt er að komast til móts við félög sem ná ekki sex manna sveit, með því að bjóða upp á í mesta lagi tvo lánsmenn með félagi sem sendir aðeins eina sveit til leiks. Sveit með lánsmenn innan sinna raða getur hins vegar ekki lent í verðlaunasæti í mótinu né hlotið titilinn Atskákmeistarar taflfélaga.
Liðstjórum ber að skila inn styrkleikalista sinna sveita áður en mótið hefst í tölvupósti til skákstjóra í síðasta lagi klukkan 11:00 laugardaginn 14. nóvember
Þátttökugjald sveita:
Reikningur fyrir þátttökugjöldum verður sendur á félög með kennitölu. Félög sem eru án kennitölu leggja inn á reikning Taflfélags Reykjavíkur. Reikningsnúmer: 0101-26-640269 Kt: 640269-7669
A sveit 15.000 kr
B sveit 11.000 kr
C sveit 6.000 kr
Tímamörk:
10 mín + 5 sek
Dagskrá:
Laugardagur 14. nóvember kl. 13:30 Mótið hefst stundvíslega og húsið opnar 13:00.
Stutt hlé eftir 4. umferð. Mótinu lýkur fyrir klukkan 18:00.
Farandbikar er veittur fyrir sigurvegara mótsins ásamt viðurkenningarskjölum fyrir þrjár efstu sveitirnar ásamt efstu b-sveitinni.
Oddastig (e. Tiebreaks)
- Liðsvinningar (e. match points)
- Vinningafjöldi
- Innbyrðis viðureign
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Það lið sem hlýtur flest liðsvinninga (e.match points) hlýtur titilinn Atskákmeistarara taffélaga 2026. Ef lið verða jöfn á liðssvinnigum og vinningum gildir innbyrðis viðureign úr um röð sveita. Ef enn er jafnt milli efstu sveita verður haldin aukakeppni um titilinn, strax að loknu móti. Verði aukakeppnin jöfn ræður hlutkesti.
Mótsstjóri er Gauti Páll Jónsson (gautipall@taflfelag.is)
Skákstjórn auglýst þegar nær dregur.












