Evrópukeppni taflfélaga lauk í Budva í Svartfjallalandi í dag þegar sjöunda umferðin kláraðist. Fjögur íslensk lið tóku þátt í opna flokknum og varð A-lið Breiðabliks efst þeirra í 36. sæti. Akureyri hafnaði í 60. sæti, B-lið Breiðabliks í 63. sæti og Víkingur í 78. sæti. Stephan Briem sem fór fyrir b-liði Blika átti fínt mót og náði IM-áfanga! Björn Þorfinnsson og félagar hans í Cheddleton tefldu á allra efstu borðum en urðu að lúta í dúk eftir vaska framgöngu á mótinu.
Sigil Fund Pardubice – Breiðablik A 5–1
A-lið Breiðabliks fékk afar sterkt tékkneskt lið Sigil Fund Pardubice í lokaumferðinni og tapaði 1–5. Bárður Örn Birkisson og Björn Hólm Birkisson náðu jafntefli, en tékkneska liðið vann hinar fjórar skákirnar.
| Borð | Sigil Fund Pardubice | Úrslit | Breiðablik A |
|---|---|---|---|
| 1 | GM Sergei Movsesian (2594) | 1–0 | GM Vignir Vatnar Stefánsson (2534) |
| 2 | GM Zbynek Hracek (2525) | 1–0 | IM Hilmir Freyr Heimisson (2365) |
| 3 | IM Jachym Nemec (2478) | 1–0 | FM Birkir Ísak Jóhannsson (2306) |
| 4 | FM Bayarjavkhlan Delgerdalai (2383) | ½–½ | FM Bárður Örn Birkisson (2264) |
| 5 | FM Radek Bujnoch (2259) | 1–0 | CM Benedikt Briem (2239) |
| 6 | WGM Joanna Worek (2278) | ½–½ | CM Björn Hólm Birkisson (2234) |
Lokatölur: Sigil Fund Pardubice 5–1 Breiðablik A
Breiðablik A lauk mótinu í 36. sæti af 108 liðum með átta stig eftir fjóra sigra og þrjú töp. Liðið var númer 30 í styrkleikaröð mótsins. Björn Hólm varð nokkuð lúmskt aflakóngur liðsisn með 4,5 vinning.
Koninklijke Wetterse Vrijpion – Breiðablik B 4–2
B-lið Breiðabliks tapaði 2–4 fyrir belgíska liðinu Koninklijke Wetterse Vrijpion. Stephan Briem og Arnar Milutin Heiðarsson gerðu jafntefli á tveimur efstu borðunum og Guðrún Fanney Briem vann á sjötta borði.
| Borð | Koninklijke Wetterse Vrijpion | Úrslit | Breiðablik B |
|---|---|---|---|
| 1 | IM Sim Maerevoet (2462) | ½–½ | Stephan Briem (2154) |
| 2 | FM Jasper Beukema (2362) | ½–½ | Arnar Milutin Heiðarsson (2104) |
| 3 | FM Warre De Waele (2315) | 1–0 | Davíð Kolka (2043) |
| 4 | FM Maarten De Vleeschauwer (2196) | 1–0 | Markus Orri Jóhannsson (1982) |
| 5 | Tibo Maes (2060) | 1–0 | Birkir Hallmundarson (1888) |
| 6 | Tibo Lachaert (1930) | 0–1 | WFM Guðrún Fanney Briem (1927) |
Lokatölur: Koninklijke Wetterse Vrijpion 4–2 Breiðablik B
Breiðablik B endaði í 63. sæti með sex stig eftir þrjá sigra og fjögur töp. Liðið var aðeins númer 84 í styrkleikaröð fyrir mót og bætti því stöðu sína um rúmlega tuttugu sæti. Áfanginn hjá Stephan var skiljanlega besti árangur liðsins, fékk 3,5 af 7 gegn gríðarlega sterku prógrammi.
Akureyri – Mornar Split 2–4
Akureyringar mættu sterku króatísku liði Mornar Split og töpuðu 2–4. Gauti Páll Jónsson vann sína skák, en Magnús P. Örnólfsson og Bogi Pálsson gerðu jafntefli.
| Borð | Akureyri | Úrslit | Mornar Split |
|---|---|---|---|
| 1 | GM Margeir Pétursson (2386) | 0–1 | GM Ivan Saric (2621) |
| 2 | FM Rúnar Sigurpálsson (2251) | 0–1 | GM Ante Saric (2469) |
| 3 | CM Magnús P. Örnólfsson (2143) | ½–½ | CM Luka Saric (2188) |
| 4 | Gauti Páll Jónsson (2121) | 1–0 | Borna Cotic (2133) |
| 5 | Stefan Steingrímur Bergsson (2114) | 0–1 | Marin Bacetic (2040) |
| 6 | Bogi Pálsson (2094) | ½–½ | Roko Petric (1989) |
Lokatölur: Akureyri 2–4 Mornar Split
Akureyri varð í 60. sæti með sex stig. Liðið vann tvær viðureignir, gerði tvö jafntefli og tapaði þremur. Akureyri var númer 57 í styrkleikaröð fyrir mótið. Halldór B. og Áskell voru hlutfallslega bestir með 3 vinninga af 4.
Víkingur – Davit Jojua’s Chess Club A 3½–2½
Víkingar luku mótinu á góðum nótum með 3½–2½ sigri á georgíska liðinu Davit Jojua’s Chess Club A. Halldór Pálsson og Sigurbjörn Hermannsson unnu sínar skákir, en Tapani Sammalvuo, Gunnar Rúnarsson og Sigurður Ingason gerðu jafntefli.
| Borð | Víkingur | Úrslit | Davit Jojua’s Chess Club A |
|---|---|---|---|
| 1 | IM Tapani Sammalvuo (2363) | ½–½ | FM Nikolozi Shamatava (2307) |
| 2 | CM Jón Árni Halldórsson (2037) | 0–1 | CM Alexander Sukhiashvili (2115) |
| 3 | CM Gunnar Rúnarsson (2001) | ½–½ | Andria Jakhaia (1886) |
| 4 | Halldór Pálsson (1991) | 1–0 | Giorgi Gio Chanturia (1670) |
| 5 | Sigurbjörn Hermannsson (1917) | 1–0 | CM Aleksandr And Popov (2019) |
| 6 | Sigurður Ingason (1820) | ½–½ | Ioana Jojua (1575) |
Lokatölur: Víkingur 3½–2½ Davit Jojua’s Chess Club A
Víkingur endaði í 78. sæti með sex stig eftir þrjá sigra og fjögur töp. Liðið var númer 75 í styrkleikaröð mótsins. Framúrskarandi árangur hjá Sigurbirni sem fékk 6 af 7 og hefur tryggt sér CM-titil og fær FM-titil ef hann nær 2100 skákstigum.
Lokastaða íslensku liðanna
36. Breiðablik A – 8 stig, 4 sigrar og 3 töp, 22½ vinningur
60. Akureyri – 6 stig, 2 sigrar, 2 jafntefli og 3 töp, 19½ vinningur
63. Breiðablik B – 6 stig, 3 sigrar og 4 töp, 17 vinningar
78. Víkingur – 6 stig, 3 sigrar og 4 töp, 17 vinningar.
Björn tapaði sinni skák í lokaumferðinni eins og áður hefur komið fram en Ingvar vann sína skák og tryggði Kingston sigur með minnsta mun. Ásta Kristbjörnsdóttir tapaði sinni skák.
Skák Björns
Bayegan Pendik Evrópumeistari
Tyrkneska stórliðið Bayegan Pendik Chess Sports Club varð Evrópumeistari taflfélaga. Bayegan og tékkneska liðið Novy Bor Chess Club fengu bæði 13 stig eftir sex sigra og eitt jafntefli, en Bayegan hafði betur á oddastigum. Rishon LeZion A frá Ísrael varð í þriðja sæti með 12 stig eftir sigur gegn Birni og félögum í Cheddleton.
Bayegan tefldi fram stórmeisturunum Anish Giri, Yagiz Kaan Erdogmus, Amin Tabatabaei, Richard Rapport, Shakhriyar Mamedyarov og Ediz Gurel í lokaumferðinni.
Monte-Carlo vann kvennaflokkinn
Í kvennaflokki varð Cercle d’Echecs de Monte-Carlo Evrópumeistari. Liðið fékk 12 stig, jafnmörg og CE Gambit Bonnevoie, en hafði betur á oddastigum. Sirmium Sremska Mitrovica varð í þriðja sæti með 10 stig.
Þar með lauk sjö umferða Evrópukeppni taflfélaga 2026 í Budva, þar sem 108 lið tóku þátt í opna flokknum og 22 lið í kvennaflokki. Skemmtilegt mót og ljóst að Íslendingar munu halda áfram að sækja þetta mót!














