Vignir og félagar í a-sveit Breiðabliks að tafli í gær.

Sjötta og næstsíðasta umferð var tefld í gær á EM taflfélaga í Búdva í Svartfjallalandi. A-sveit Breiðabliks náði góðum sigri á dönsku sveitinni Hillerød Skakklub í gær. Skákfélag Akureyrar náði góðu jafntefli gegn sterkri hollenskri sveit. Björn Þorfinnsson vann gríðarlegan mikilvægan sigur gegn stórmeistara. Sveit hans hefur möguleika á að tefla í Ofurdeild ECU í febrúar.

Breiðablik A – Hillerød Skakklub (4–2)

Góður sigur þrátt fyrir tap á fyrsta borði. Hilmir Freyr, Birkir Ísak og Björn Hólm unnu allir. Sterkur og mikilvægur sigur á Dönum.

Borð Breiðablik A Hillerød Úrslit
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson (2534) GM Sune Berg Hansen (2495) 0–1
2 IM Hilmir Freyr Heimisson (2365) IM Nikolaj Borge (2373) 1–0
3 FM Birkir Ísak Jóhannsson (2306) FM Jens Østergaard (2270) 1–0
4 FM Bárður Örn Birkisson (2264) FM Tim Jaksland (2107) ½–½
5 CM Benedikt Briem (2239) Jan Nordenbæk (2164) ½–½
6 CM Björn Holm Birkisson (2234) Niels-Peter Nielsen (2043) 1–0

Akureyri – LSG (3–3)

Skákfélagsmenn að taflí gær.

Magnús Pálmi og Gauti Páll með gríðarlega góð úrslit gegn alþjóðlegum meisturum. Gauti vann í aðeins 18 leikjum og gerir skákinni góð skil á Feikbúkk-síðu sinni.

Borð Akureyri LSG Úrslit
1 GM Margeir Pétursson (2386) GM Arthur Pijpers (2487) ½–½
2 CM Magnús P. Örnólfsson (2143) IM Jan-Willem de Jong (2408) 1–0
3 Gauti Páll Jónsson (2121) IM Edwin Van Haastert (2361) 1–0
4 CM Halldór Halldórsson (2078) IM Thomas Willemze (2327) 0–1
5 Stefan S. Bergsson (2114) IM Michiel Bosman (2286) ½–½
6 Bogi Pálsson (2094) Marnix Hofman (2201) 0–1
Víking – Gambit Bonnevoie (2½–3½)
Sigurbjörn og félagar hans í Víkingum að tafli á EM

Víkingar töpuðu með minnsta mun. Sigurbjörn Hermannsson heldur áfram frábærri frammistöðu sinni og hefur fengið 5 vinninga í 6 skákum. Sá árangur gefur honum rétt að sækja um FM-titil en til þess þarf hann þó að ná 2100 stigum hið minnsta. Í millitíðinni gæti hann sótt um CM-titil en til þess þarf hann fyrst að ná a.m.k. 2000 skákstigum! Þess má geta að hann hefur hækkað um 51 skákstig það sem af er móti. Það styttist í titil hjá Sigurbirni!

Borð Víking Gambit Bonnevoie Úrslit
1 IM Tapani Sammalvuo (2363) IM François Godart (2390) ½–½
2 FM Páll A. Þórarinsson (2172) FM Jan Bednarich (2162) ½–½
3 CM Jón Árni Halldórsson (2037) CM Cédric Reymann (2210) 0–1
4 CM Gunnar Rúnarsson (2001) CM Slobodan J. Filipovic (2157) 0–1
5 Halldór Pálsson (1991) Michael Schwerteck (2119) ½–½
6 Sigurbjörn Hermannsson (1917) Geoffrey Stern (1917) 1–0
Breiðablik B – Dardania (1–5)
B-sveit Breiðabliks að tafli í gær. Stephan Briem náði góðu jafntefli gegn sterkasta skákmanni Kósóvó.

Stephan Briem og Davíð Kolka með góð úrslit en stórt tap gegn sterkri sveit.

Borð Breiðablik B Dardania Úrslit
1 Stephan Briem (2154) IM Nderim Saraci (2445) ½–½
2 Arnar M. Heiðarsson (2104) FM Mateu Boci (2332) 0–1
3 Davíð Kolka (2043) FM Ergit Ramaj (2310) ½–½
4 Markus O. Jóhannsson (1982) FM Endrit Uruci (2318) 0–1
5 Birkir Hallmundarson (1888) CM Korab Saraci (2241) 0–1
6 WFM Guðrún F. Briem (1927) CM Alban Krasniqi (2198) 0–1

Stakir Íslendingar

 

Skákmaður Lið Andstæðingur Úrslit
IM Björn Þorfinnsson Cheddleton GM Marian Jurčík (2404) 1–0
Ásta Kristbjörnsdóttir She Plays To Win Lionesses B Lucrezia Aiko Tosi (1744) 0–1
Björn og félagar í gær. Unnu mikilvægan sigur og eru í baráttunni um að komast í ofurdeild ECU.

IM Björn Þorfinnsson átti mjög góða skák í gær í sigri Cheddleton-liðsins og vann lagði sitt heldur betur að mörkum í 3½–2½ sigri liðsins. Tefldi gríðarlega vel í tímahraki andstæðingsins, stórmeistarans Marian Jurcik (2404), og lagði hann að velli. Cheddleton er í sjöunda sæti og hefur möguleika á því að komast í nýja ofurdeild ECU sem haldin verður í Búkarest í febrúar. Fimm efstu liðin nú fá keppnisrétt þar.

Sjöunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 12:15. Breiðblik verður í beinni gegn tékknesku sveitinni Sigil Fund Pardubice. Björn Þorfinnsson verður einnig í beinni sem og Ásta Kristbjörnsdóttir.  Ingvar Þór Jóhannesson teflir í dag sem skýrir af hverju ég er að skrifa þessa frétt en ekki hann!

Myndir: Mark Livshitz

Myndaalbúm 

Toppbaráttan

Toppbaráttan er gríðarlega hörð. Á toppnum eru SuperChess frá Rúmeníu, Bayegan Pendik frá Tyrklandi og Novy Bor frá Tékklandi. Cheddleton, lið Björns, er eins og áður sagði í sjöunda sæti. Fimm efstu sætin gefa keppnisrétt í ofurdeild ECU í febrúar svo sigur Björns og félaga gegn ísraelskri sveit í dag gæti tryggt þeim keppnisrétt.

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn