Helgi Áss Grétarsson byrjar Benidorm Chess Open 2026 vel og hefur unnið báðar fyrstu skákir sínar. Í dag er tvöföld umferð og baráttan fer að verða harðari.

Helgi tefldi í gær með hvítu gegn Rúmenanum Sebastian-Ionut Pavel (2153). Skemmst er frá því að segja að Helgi pakkaði Rúmenanum saman og gaf engin færi, ýti honum jafnt og þétt út af borðinu, góð skák hjá Helga!

Helgi hefur svart gegn FIDE-meistara frá Andorra í 3. umferðinni sem nú er í gangi, önnur af tveimur skákum sem tefldar verða í dag.

Um mótið:

Helgi er með 2405 Elo-stig og er fjórði í styrkleikaröð A-flokksins. Fyrir ofan hann eru rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca (2507), Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500) og Indverjinn Lalit Babu M R (2489).

Benidorm Chess Open fer fram dagana 25. október til 1. nóvember á Hotel Meliá Benidorm. Tefldar eru níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörkin 90 mínútur á skákina auk 30 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Mótið er FIDE-reiknað og gefur möguleika á alþjóðlegum áföngum.

Mótinu er skipt í tvo meginflokka. Open A er ætlaður skákmönnum með yfir 1800 Elo-stig en Open B er fyrir keppendur undir 2000 stigum. Heildarverðlaunafé mótshátíðarinnar er rúmlega 25 þúsund evrur.

Helgi teflir að sjálfsögðu í sterkari flokknum og er einn af fjórum stigahæstu keppendum mótsins.

Fyrsta umferðin fór fram í gær 25. október en önnur umferð hófst nú rétt áðan.

Dagskrá mótsins er þétt:

  • 25. október kl. 17:30 – 1. umferð
  • 26. október kl. 16:30 – 2. umferð
  • 27. október kl. 10:00 – 3. umferð
  • 27. október kl. 16:30 – 4. umferð
  • 28. október kl. 16:30 – 5. umferð
  • 29. október kl. 16:30 – 6. umferð
  • 30. október kl. 16:30 – 7. umferð
  • 31. október kl. 16:30 – 8. umferð
  • 1. nóvember kl. 9:30 – 9. og síðasta umferð

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn