Áttundu umferð Evrópumóts ungmenna lauk fyrr í dag.
Dagur og Guðrún Fanney unnu sínar skákir. Karma, Nökkvi Már, Eiður og Markús Orri gerðu jafntefli og Mikael Bjarki fékk vinning fyrir yfirsetu.

Dagur og Róbert Heiðar mættust innbyrðis og hafði Dagur sigur eftir talsverðar flækjur í miðtaflinu. Róbert missti af besta framhaldinu, lenti í slæmu tímahraki og Dagur nýtti sér það vel. Karma og Nökkvi Már gerðu innbyrðis jafntefli í skák sem hefði mátt vera lengri.
Eiður og Markús Orri stóðu báðir betur um tíma í sínum skákum en náðu ekki að nýta sín færi og þurftu að sætta sig við jafntefli.

Guðrún Fanney átti skák dagsins gegn hinni tékknesku Stara (2056). Upp kom Kan-afbrigði Sikileyjarvarnar, nokkuð óvænt reyndar, því mestur tími undirbúnings fór í aðrar leiðir. Svörtum voru mislagðar hendur í byrjuninni og lenti fljótlega þröngri og erfiðri stöðu. Guðrún jók pressuna smátt og smátt með sókn á báðum vængjum þar til eitthvað varð undan að láta. Skákinni lauk hún svo með smekklegri drottningarfórn!

Lokaumferð mótsins hefst kl. 12:00 á íslenskum tíma á morgun. Guðrún Fanney stendur best að vígi í hópi Íslendinganna og verður í beinni útsendingu.

Chess-results
Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Mótið stendur yfir dagana 3.-12. nóvember. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 90+30.
U18
Markús Orri Óskarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson
U16 stúlknaflokkur
Guðrún Fanney Briem
U14
Birkir Hallmundarson
U14 stúlknaflokkur
Harpa Hrafney Karlsdóttir
U12
Haukur Víðis Leósson
Pétur Úlfar Ernisson
Karma Halldórsson
Nökkvi Már Valsson
U10
Dagur Sverrisson
Eiður Jökulsson
Róbert Heiðar Skúlason
U8
Helgi Fannar Óðinsson
Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.
Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):
|
Þriðjudagur
|
3. nóvember
|
13:00
|
Umferð 1
|
|
Miðvikudagur
|
4. nóvember
|
13:00
|
Umferð 2
|
|
Fimmtudagur
|
5. nóvember
|
13:00
|
Umferð 3
|
|
Föstudagur
|
6. nóvember
|
13:00
|
Umferð 4
|
|
Laugardagur
|
7. nóvember
|
13:00
|
Umferð 5
|
|
Sunnudagur
|
8. nóvember
|
Frídagur
|
|
|
Mánudagur
|
9. nóvember
|
13:00
|
Umferð 6
|
|
Þriðjudagur
|
10. nóvember
|
13:00
|
Umferð 7
|
|
Miðvikudagur
|
11. nóvember
|
13:00
|
Umferð 8
|
|
Fimmtudagur
|
12. nóvember
|
12:00
|
Umferð 9
|

















