Sigurlaug við upphaf umferðar í gær.

Áttunda umferð Heimsmeistaramóts öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu var tefld í dag. Íslendingum gekk vel í 65+ flokki kvenna en aðeins kom hálfur vinningur í hús í 50+ flokknum þar sem Hannes gerði jafntefli við stórmeistarann Atalik en Henrik laut í dúk.

Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes kampakátur.

Hannes hafði hvítt gegn Atalik, reyndum stórmeistara. Að einhverju leiti var skákin aldrei í neinni hættu á að enda ekki með jafntefli. Keppendur skiptust á að fá örlítið forskot í tölvunum en aldrei var stutt í mikla hættu á hvorugan.

Hannes hefur 5,5 vinninga eftir þetta jafntefli.

Henrik Danielsen missti þráðinn nokkuð snemma gegn Kazakanum sterka Petr Kostenko og varð að lúta í dúk.

Henrik hefur 4 vinninga.

  • GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.

Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).

Konur 65+ (29 keppendur)

Umferðin gekk nokkuð vel hjá íslensku stelpunum. Guðlaug lagði rúmenska skákkonu og Sigurlaug lagði rússneska.

Gauðlaug hefur 4 vinninga og Sigurlaug hefur 3,5 vinning.

  • WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
  • Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.

Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!

Úrslit 8. umferðar:

Pörun 9. umferðar:

Hannes, Henrik og Guðlaug verða í beinni útsendingu og teflt verður á hverjum degi til loka móts, frídagurinn að baki og tefldar eru 11 umferðir.

Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.

Tenglasafn

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn