Evrópumóti ungmenna í skák á Krít lauk í dag.
Íslenski hópurinn náði í fína uppskeru á lokadeginum. Helgi, Pétur, Karma, Harpa, Guðrún Fanney og Mikael Bjarki unnu sínar skákir. Róbert, Haukur og Birkir gerðu jafntefli. Eiður gat ekki teflt í lokaumferðinni vegna veikinda.

Guðrún Fanney Briem, sem hafði allt mótið verið í námunda við toppbaráttuna, innsiglaði frábært mót með öruggum sigri í lokaumferðinni. Andstæðingur hennar, Anna Sofie Li (2117) frá Danmörku, hefur mætt Guðrúnu oft í gegnum tíðina og er ágætis vinskapur þeirra á milli. Guðrún var hins vegar í miklum baráttuham og kom inn í skákina með að markmiði að vinna. Undirbúningur skákarinnar var mjög djúpur og var lögð áhersla á þær leiðir sem sú danska hefur jafnan valið. Í 8. leik eyddi hún talsverðum tíma og brá svo út af því sem hún hefur áður gert. Guðrún var með framhaldið á hreinu og sú danska lenti í vandræðum í stöðu sem hún kannaðist ekki við. 12. leikur hennar var mjög slæmur og eftir skák á a4 stóð Guðrún uppi með kolunnið tafl.
Guðrún Fanney endaði með 6,5 vinning og lokastaðan hennar 6. sæti. Þessi frammistaða er einn besti árangur nokkurs Íslendings síðan byrjað var að halda mótin með núverandi fyrirkomulagi.
Rétt er að benda á að 1987 varð Þröstur Árnason Evrópumeistari ungmenna og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir endaði í 5. sæti í stúlknaflokki. Mótin voru þá með öðru sniði.

Harpa Hrafney tefldi eins og herforingi í lokaumferðinni og náði í góðan sigur gegn Ema Gal (1793) frá Króatíu. Undirbúningurinn fyrir skákina var góður og fékk Harpa upp nákvæmlega þá stöðu sem stefnt var að. 11. leikur svarts gerði stöðu hennar enn verri og Harpa jók pressuna smátt og smátt og innbyrti öruggan sigur í endatafli. Árangur Hörpu á mótinu er eftirtektarverður, 4 vinningar og góður stigaplús. Hún lagði mikið á sig í undirbúningi fyrir skákirnar á mótinu.
Lokastaða íslensku keppendanna
Hér að neðan má sjá lokastöðu allra íslensku keppendanna, ásamt vinningafjölda, lokasæti í viðkomandi aldursflokki og áætlaðri Elo-breytingu samkvæmt Chess-Results.
| Keppandi | Flokkur | Vinningar | Sæti | Elo +/− |
|---|---|---|---|---|
| Guðrún Fanney Briem | Stúlkur U16 | 6,5/9 | 6. | +121,2 |
| Harpa Hrafney Karlsdóttir | Stúlkur U14 | 4/9 | 70. | +38,0 |
| Helgi Fannar Óðinsson | Opinn U8 | 4/9 | 69. | −106,0 |
| Dagur Sverrisson | Opinn U10 | 3,5/9 | 98. | −49,2 |
| Róbert Heiðar Skúlason | Opinn U10 | 3/9 | 107. | −24,4 |
| Eiður Jökulsson | Opinn U10 | 2,5/9 | 121. | −24,0 |
| Haukur Víðis Leósson | Opinn U12 | 4,5/9 | 65. | −28,4 |
| Pétur Úlfar Ernisson | Opinn U12 | 4/9 | 76. | −18,0 |
| Karma Halldórsson | Opinn U12 | 3,5/9 | 107. | −65,2 |
| Nökkvi Már Valsson | Opinn U12 | 2,5/9 | 117. | +39,6 |
| Birkir Hallmundarson | Opinn U14 | 3,5/9 | 107. | −87,2 |
| Markús Orri Óskarsson | Opinn U18 | 3,5/9 | 78. | −16,8 |
| Mikael Bjarki Heiðarsson | Opinn U18 | 3,5/9 | 82. | −14,4 |
Dýrmæt reynsla á alþjóðlegum vettvangi
Keppnin á Evrópumeistaramóti ungmenna er jafnan afar hörð og mæta íslensku keppendurnir þar mörgum af efnilegustu skákmönnum álfunnar.
Þótt árangurinn hafi verið misjafn hjá íslensku keppendunum var þátttakan mikilvæg reynsla og nokkrir þeirra sýndu góða spretti gegn sterkum andstæðingum.
Lokastaðan í öllum flokkum
Skákir í beinni
Mótið stóð yfir dagana 3.-12. nóvember. Tefldar voru níu umferðir með tímamörkunum 90+30.
U18
Markús Orri Óskarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson
U16 stúlknaflokkur
Guðrún Fanney Briem
U14
Birkir Hallmundarson
U14 stúlknaflokkur
Harpa Hrafney Karlsdóttir
U12
Haukur Víðis Leósson
Pétur Úlfar Ernisson
Karma Halldórsson
Nökkvi Már Valsson
U10
Dagur Sverrisson
Eiður Jökulsson
Róbert Heiðar Skúlason
U8
Helgi Fannar Óðinsson
Þjálfarar íslenska hópsins voru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.

















