Níunda umferð Heimsmeistaramóts öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu var tefld í dag. Hannes Hlífar náði í góðan sigur í 50+ flokknum sem heldur honum í seilingarfjarlægð við toppinn, Hannes er enn ósigraður á mótinu. Guðlaug Þorsteinsdóttir vann einnig sína skák í beinni í 65+ flokki kvenna.
Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes hafði svart gegn Jacob Sylvan frá Danmörku. Hannes ætlaði sér greinilega að ná í sigur í dag. Tefld var sikileyjarvörn og Daninn lék af sér peði snemma með 12.h4? en staðan samt gruggug. Hannes fór í stórsókn, fórnaði manni og tefldi skemmtilega. Sóknin bar ávöxt í lokin og Hannes því enn í séns á mótinu endi hann mótið vel!
Hannes hefur 6,5 vinninga eftir þennan sigur.
Henrik Danielsen hafði svart gegn London og upp kom þráleikur í lokin. Hvítur hafði þá meira rými og klárlega betri stöðu en treysti sér ekki að reyna við vinninginn.
Henrik hefur 4,5 vinninga eftir jafnteflið.
- GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.
Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).
Konur 65+ (29 keppendur)
Guðlaug náði að leggja Olgu Grigoryevu að velli í umferð dagsins. Sú rússneska kom Guðlaugu í opna skjöldu í byrjuninni með hinu gamla Steinitz afbrigði gegn Skotanum. Mikill tími fór í byrjunina en smám saman náði Guðlaug saman sínum vopnum og hafði betur í stöðubaráttu í miðtaflinu.
Sigurlaug tapaði fyrir hinni margreyndu Ingrin Lauterbach í umferðinni.
Guðlaug hefur 5 vinninga og Sigurlaug hefur 3,5 vinning.
- WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
- Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.
Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!
Úrslit 9. umferðar:

Pörun 10. umferðar:

Hannes og Guðlaug verða í beinni útsendingu og nú er að duga eða að drepast með tvær umferðir til stefnu!
Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.
Tenglasafn
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results – Íslendingar
- Opinn 50+ – chess-results
- Konur 65+ – chess-results
- Beinar útsendingar á Lichess
















