Jóhann að tafli í Gíbraltar í fyrra.

Jóhann Hjartarson (2524) tekur þátt í alþjóðlega mótinu á Gíbraltar sem hófst í gær. Hann vann í fyrstu umferð hollenska skákmeistarann Job De Lange (2211). Önnur umferð fer fram í dag og þá mætir hann öðrum Hollendingi. Sá heitir Gerben Veltkamp (2140). Sá vann stórmeistara í gær svo hann gæti verið skeinuhættur þrátt fyrir að hafa svipuð skákstig og ritstjórinn.

Alls tefla 248 skákmenn í efsta flokki mótsins og þar af eru 85 stórmeistarar. Stigahæstir keppenda eru Mamedyarov og MVL en báðir hafa þeir 2770 skákstig.

Skák Jóhanns verður að öllum líkindum í beinni í dag. Sjá hér á Chess24. Hefst kl. 14.

 

- Auglýsing -