Kóngurinn vann krónprinsinn. Mynd: Alina l'Ami/Tata Steel Chess

Magnús Carlsen (2872) er enn kóngurinn. Hann vann „krónprinsinn“ Alireza Firouzja (2723) í níundu umferð Tata Steel-mótsins í Wijk aan Zee í gær og það með svörtu í Berlínarafbrigði spænska leiksins. Öllum öðrum skákum lauk með jafntefli.

Staðan er því galopin þegar aðeins fjórum umferðum er ólokið. Fabiano Caruana (2822) er efstur með 6 vinninga. Carlsen og Firouzja eru í 2.-5. sæti með 5½ vinning ásamt Wesley So (2765) og Jorden Van Foreest (2644).

Staðan eftir níu umferðir

Tíunda umferð fer fram í dag. Carlsen teflir við Vladislav Kovalev (2660) og Caruana og Firouzja mætast.

Sjá nánar á Chess.com.

- Auglýsing -