Skákþingi Vestmannaeyja 2020 lauk miðvikudaginn 4. mars síðast liðinn. Mótið hófst 16. janúar sl., keppendur voru tíu talsins, níu umferðir voru leiknar og tími 60 mín. + 30 sek. á  leik. Tók hver umferð að jafnaði 2-3 klukkustundir. Teflt var í skákheimili TV við Heiðarveg á miðvikudagskvöldum og einnig ef með þurfti á eftir hádegi á sunnudögum. Flestir keppendur eru með alþjóðleg skákstig.

Sigurvegari á skákþinginu var Sigurjón Þorkelsson (1969) , með 8 vinninga, í öðru sæti var Arnar Sigurmundsson, (1651) með 6½ vinning, og í þriðja sæti Hallgrímur Steinsson (1796) með 6 vinninga og jafnir í  4.-5. sæti urðu Einar B. Guðlaugsson (1861) og Stefán Gíslason (1722) með 5½ vinning. Keppendur voru á öllum aldri, þeir  elstu vel yfir sjötugt, en þeir yngstu 11 og 12 ára.

Keppendur á Skákþingi Vestmannaeyja.

Lokastaðan á Chess-Results.

Sigurjón Þorkelsson var vel að sigrinum kominn og sýndi mikið öryggi allt mótið. Er þetta í 14. skipti sem Sigurjón Þorkelsson verður Skákmeistari Vestmannaeyja.

- Auglýsing -