Fyrsta umferð Íslandsmótsins í netkappskák fór fram í gærkvöldi. Mæting var framar vonum og hófu 37 keppendur leik og tefldu skákir hver af sínu heimili við bestu aðstæður. Augu manna beindust snemma að fimmta borðinu þar sem Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins lék af sér drottningunni strax í 10.leik á móti Guðmundi Orra Sveinbjörnssyni 11ára skákmanni úr Breiðablik. Hinn ungi Bliki tefldi svo framhaldið eins og herforingi og fórnaði mönnum á báðar hendur fyrir sóknarfæri og virka stöðu. Formaðurinn streittist á móti, en alltaf kom sá ungi til baka með snjalla leiki sem viðhéldu yfirburðunum. Í lokin kom upp endatafl þar sem Guðmundur Orri var með drottningu gegn hrók Gunnars Freys. En þá kom slæmur afleikur sem tapaði drottningunni óbættri. Kraftajötuninn og stálmaðurinn Gunnar Freyr var því sannarlega stálheppinn í þessari skák.
Önnur úrslit voru nokkuð eftir bókinni en hart barist í mörgum skákum. Næsta umferð verður tefld í kvöld kl 19:30
Viðureignir 2.umferðar:
Eftir hverja umferð eru allar skákir sendar til skönnunar hjá prófessor Kenneth Regan sem er sérfræðingur FIDE í að meta skákir út frá því hvort skákmaðurinn hefur sjálfur verið að tefla eða fengið utanaðkomandi aðstoð. Niðurstöður fyrir fyrstu umferðina eru komnar og er hún að allt hafi farið vel fram.
ROI = "Raw Outlier Index" which is composed of the MM% and AvgScD indexes over 100,000s of games. The ROI is scaled so that 50 = expectation for one's rating; 40-60 = "completely normal"; 60-70 = "still mostly normal, but if there is a complaint, take it seriously"; and >= 70 means to give extra discreet scrutiny to the player and contact the Chess.com anticheating specialist for further tests.
Dear Halldor,
Reports at … All numbers are between 40 and 60 which is quite normal.
—Ken

















