Íslandsmót ungmenna (u8–u16) fór fram í gær, 17. október, í Miðgarði í Garðabæ. Alls tóku 135 keppendur þátt í fimm aldursflokkum – metþátttaka og töluvert meira en undanfarin ár (97 keppendur árið 2025). Um fimmtungur keppenda voru stúlkur (um 28 stúlkur) sem er afar gott hlutfall í sögulegu ljósi. Nánast öll sterkustu ungmenni landsins tóku þátt.
U8 (fædd 2018 og síðar) – 31 keppandi
Tauras Nareika varð Íslandsmeistari. Hann vann flokkinn með fullu húsi. Helgi Fannar Óðinsson varð annar með 6 vinninga og Jón Fenrir Ragnarsson þriðji með 5.
Sólveig Hólm Brynjarsdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna átta ára og yngri.
Stúlkur:
- Sólveig Hólm Brynjarsdóttir (Breiðablik) – 3 v.
- Viktoria Robyn Roberts (TR) – 2 v.
- Emilia Karin Arnarsdóttir (TR) – 2 v.
U10 (fædd 2016–2017) – 38 keppendur
Dagur Sverrisson sigraði með fullu húsi og varð Íslandsmeistari. Ekki í fyrsta sinn! Eiður Jökulsson varð annar með 6 og Róbert Heiðar Skúlason þriðji með 5.
Alexandra Voron Aðalsteinsdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna 10 ára og yngri.
Stúlkur:
- Alexandra Voron Aðalsteinsdóttir – 5 v.
- Miroslava Skibina – 4½ v.
- Praanvi Kandukuri – 4 v.
U12 (fædd 2014–2015) – 38 keppendur
Haukur Víðis Leósson vann með fullu húsi. Nökkvi Már Valsson og Pétur Úlfar Ernisson urðu jafnir að vinningum í 2.–3. sæti með 5½. Nökkvi tók annað sætið eftir stigaútreikning.
Katrín Ósk Tómasdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna 12 ára og yngri.
Stúlkur:
- Katrín Ósk Tómasdóttir – 4½ v.
- Þóra Kristín Jónsdóttir – 3 v.
- Jaagruthi Kalasthri – 2½ v.
U14 (fædd 2012–2013) – 19 keppendur
Örvar Hólm Brynjarsson vann með 6 vinningum. Tristan Fannar Jónsson og Anh Hai Tran urðu jafnir með 5. Tristan tók silfrið eftir stigaútreikning.
Halldóra Jónsdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna 14 ára og yngri.
Stúlkur:
- Halldóra Jónsdóttir – 4½ v.
- Emilía Embla Berglindardóttir – 4 v.
- Harpa Hrafney Karlsdóttir 4 v.
U16 (fædd 2010–2011) – 9 keppendur
Jósef Omarsson vann með 6 vinningum af 7. Theódór Eiríksson varð annar með 5½ og Ingi Hrafn Ýmisson þriðji með 5.
Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2027 í Hörpu auk vatnsbrúsa frá Heimilistækjum. Þrír efstu í öllum flokkum fengu verðlaunabikar og allir keppendur voru leystir út með glaðningi.
Skákstjórn önnuðust Páll Sigurðsson, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Iðunn Helga Helgadóttir, Auðbergur Magnússon, Daði Ómarsson, Lenka Ptácníková, Hrund Hauksdóttir og Harald Björnsson. Jóhanna Björg og Gunnar Björnsson sáu um undirbúning mótsins og héldu utan um það í samstarfi við Pál og Harald.
Skáksambandið vill þakka TG kærlega fyrir frábært samstarf í kringum mótshaldið og sérstakar þakkir til Garðabæjar að lána þessa glæsilegu aðstöðu undir mótið endurgjaldslaust.















