Nú er sléttur mánuður þangað til Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótið hefst í Skjólbrekku í Mývatnssveit. 25 keppendur eru nú þegar skráðir til leiks og er reiknað með að þeim eigi eftir að fjölga nokkuð. Fimm stórmeistarar eru skráðir til leiks og þar á meðal stigahæsti skákmaður Íslands og mótsins, GM Vignir Vatnar Stefánsson. GM Ivan Schitco frá Moldóvu og GM Simon Williams frá Englandi eru líka skráðir til leiks.



Íslandsmeistarinn í skák 2026 IM Hilmir Freyr Heimisson er einnig á meðal keppenda, auk stórmeistarana Braga Þorfinnsonar og Þrösts Þórhallssonar.



Alþjóðlegu meistararnir, Jón Viktor Gunnarsson, Dagur Ragnarsson, Björn Þorfinnsson og Davíð Kartansson mæta líka til leiks, auk FM Gergana Peycheva frá Búlgaríu, WGM Lenku Ptacnikova og WFM Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur. Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri titilhafar eig eftir að bætast við keppendalistiann áður en yfir lýkur. Á þessari upptalningu má sjá að mótið verður öflugt.



Undirbúningur fyrir mótið hefur staðið yfir lengi eða allt frá því að afmælismóti Goðans 2025 lauk í Skjólbrekku lauk fyrir einu og hálfu ári síðan. Það mót heppnaðist mjög vel og var þá tekin ákvörðun um að endurtaka leikinn og stefna að enn stærra móti nú. Það virðist ætla að ganga eftir.


Rútuferð BSÍ-Skjólbrekka-BSÍ verður í boði fyrir keppendur til að auðvelda keppendum að komast leiðar sinnar. Lesa allt um það hér. Þess má geta að Minningarmót um Friðrik Ólafsson fer fram í Reykjavík tveimur dögum síðar.
Sel Hótel er reyndar orðið fullbókað dagana sem mótið fer fram, en nægt framboð er af gistingu í Mývatnssveit. Mótshaldarar mæla með Gistiheimilinu Skútustöðum sem er rétt við Sel Hótel og því í göngufæri við mótsstað. Gististaðurinn Stella Rosa er líka í Göngufæri við Skjólbrekku. Hótel Laxá er svo í 3-4 km fjarlægð frá Skjóbrekku. Gistimöguleika í Mývatnssveit er hægt að skoða á visitmyvatn.is


Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE. ATH. Ef fleiri en 64 skákmenn skrá sig í mótið verður því skipt skipt í tvo stigaflokka, 2000+ elo og -2000 elo. Miðað verður við stigalista FIDE 1. nóvember 2026. Titil skákmenn með 1900-1999 elo geta þó valið hvorn flokkinn sem er.
Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00
Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.
Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.
Beinar útsendingar
Allir skákir í mótinu verða sendar út í beinni útsendingu á lichess.org (allt að 30 borð)
Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr
Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum
Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr
Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr
Þátttökugjöld
kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.
Mótsstaður er Félagsheimilið Skjólbrekka í Mývatnssveit
Félagsheimilið Skjólbrekka stendur við bakka Mývatns og er rétt við hliðina á Sel-Hóteli sem er staðsett um 700 metra í burtu. Það er um 60 mínútna akstur frá Akureyri í Skjólbrekku. Það er 6 klukkustunda akstur frá Reykjavík í Skjólbrekku.
Gistimöguleika í Mývatnssveit er hægt að skoða á visitmyvatn.is
Skrá sig í mótið (Register for the tournament)
Greiðslutengill, Fullt gjald 10.000 ISK
Greiðslutengill fyrir 18 ára og yngri. 7000 ISK.

















