EM taflfélaga hélt áfram í dag en önnur umferð mótsins var tefld í Budva í dag. Íslensku liðin unnu flest en Breiðablik varð þó að lúta í dúk gegn einni af bestu sveitum mótsins! Íslensku „málaliðarnir“ náðu aukinheldur ágætis úrslitum í dag!
Breiðablik fékk alvöru próf og mættu Alkaloid!
| Borð | Breiðablik A | Alkaloid |
|---|---|---|
| 1 | GM Vignir Vatnar Stefánsson (2534) | GM Arjun Erigaisi (2746) |
| 2 | IM Hilmir Freyr Heimisson (2365) | GM Wei Yi (2758) |
| 3 | FM Birkir Ísak Jóhannsson (2306) | GM Aravindh Chithambaram (2677) |
| 4 | FM Bárður Örn Birkisson (2264) | GM Abhimanyu Puranik (2622) |
| 5 | CM Benedikt Briem (2239) | GM Velimir Ivić (2581) |
| 6 | CM Björn Holm Birkisson (2234) | GM Zvonko Stanojoski (2371) |
Skemmst er frá því að segja að 0-6 ósigur varð niðurstaðan en á ýmsu gekk!
Vignir mætti Arjun Erigaisi. Byrjanataflmennskan frumleg en sá indverski tefldi nánast eins og tölva alla skákina!
Hilmir mætti kandídatanum Wei Yi og hafði hvítt. Sá kínverski fann bombu í 18. leik en án hennar er hvíta staðan mögulega bara betri!
18…Rxa2!! reyndist frábær leikur og sá kínverski vann!
Akureyri 3½–2½ SK Radnicki
Hörkuviðureign þar sem andstæðingar Akureyringa voru flestir rétt undir 1,5 meter á hæð og við fermingaraldur! Eftir grjótharða viðureign sem stefndi í jafntefli náði Gauti Páll að bjarga glötuðu endatafli fullt af peðum undir og tryggja sigurinn í viðureigninni. Rétt er að benda á þétta framistöðu hjá liðsstjóranum Halldóri B. sem tefldi algjör módelskák gegn sínum andstæðingi!
| Borð | Akureyri | Úrslit | SK Radnicki |
|---|---|---|---|
| 1 | GM Margeir Pétursson (2386) | 0–1 | FM Aliaksei Kramich (2295) |
| 2 | FM Rúnar Sigurpálsson (2251) | 1–0 | Hleb Palkhouski (1753) |
| 3 | CM Magnús P. Örnólfsson (2143) | 1–0 | Kira Popova (1765) |
| 4 | Gauti Páll Jónsson (2121) | ½–½ | Yaroslav Popov (1588) |
| 5 | CM Halldór Halldórsson (2078) | 1–0 | Atharv Bansal (1967) |
| 6 | Stefan S. Bergsson (2114) | 0–1 | CM Indra Reddy Patlolla (2024) |
Akureyringar unnu því góðan 3½–2½ sigur
Breiðablik B 3½–2½ Sharks 4NCL
Blikar lentu líka í hörkuviðureign. Staðan jöfn 2,5-2,5 en David Kolka var síðastur að klára og lagði FIDE meistara að velli með þéttum peðamassa í hróksendatafli.
| Borð | Breiðablik B | Úrslit | Sharks 4NCL |
|---|---|---|---|
| 1 | Stephan Briem (2154) | 0–1 | IM Peter T. Roberson (2438) |
| 2 | Arnar M. Heiðarsson (2104) | ½–½ | FM James P. Holland (2239) |
| 3 | Davíð Kolka (2043) | 1–0 | FM Liam D. Varnam (2106) |
| 4 | Markus O. Jóhannsson (1982) | 1–0 | CM Stephen A. J. Whatley (2145) |
| 5 | Birkir Hallmundarson (1888) | 1–0 | Kevin C. McCarthy (1898) |
| 6 | WFM Guðrún F. Briem (1927) | 0–1 | CM Harry Bryant (2099) |
Breiðablik B vann einnig 3½–2½, þar sem sigur á 3., 4. og 5. borði reyndist dýrmætur
Víkingur 4–2 S.S. Lazio Scacchi
Fínn sigur hjá Víkingaklúbbnum gegn efnilegum Ítölum!
| Borð | Víkingur | Úrslit | S.S. Lazio Scacchi |
|---|---|---|---|
| 1 | IM Tapani Sammalvuo (2363) | 1–0 | FM Marco Corvi (2216) |
| 2 | FM Páll A. Þórarinsson (2172) | 0–1 | Samuele F. Guido Guerriero (1958) |
| 3 | CM Jón Árni Halldórsson (2037) | 1–0 | Marco Tinari (1832) |
| 4 | CM Gunnar Rúnarsson (2001) | 0–1 | Maddalena Corvi (1974) |
| 5 | Sigurbjörn Hermannsson (1917) | 1–0 | Andrea Aceto (1771) |
| 6 | Sigurður Ingason (1820) | 1–0 | Roberto Condorelli (1645) |
- IM Björn Þorfinnsson (Cheddleton Savills Caterling, England) náði góðum sigri í sinni skák.
- Ásta Kristbjörnsdóttir (She Plays To Win Lionesses B, England, kvennaflokkur) tapaði peði snemma í sinni skák og náði aldrei að rétt almennilega úr kútnum.
- Ingvar Þór Jóhannesson tefldi sína fyrstu skák í dag gegn hinum margreynda stórmeistara Zbynek Hracek. Ingvar tefldi af öryggi og ruggaði engum bátum með hvítu mönnunum og náði í fínt jafntefli.
Í þriðju umferð á morgun mæta Akureyri sveit Perfect frá Moldavíu. Breiðablik fær sænska sveit sem þeir ættu að vinna en Breiðablik-b og Víkingar fá stigahærri sveitir. Björn, Ingvar og Ásta tefla svo líka með sínum sveitum á morgun!















