Þótt að einni umferð sé ólokið í undankeppni á Boðsmóti Magnúsar Carlsen (2881) er ljóst hverjir fylgja heimsmeistaranum í úrslitakeppnina. Það eru Fabiano Caruana (2773) sem tryggði sig inn í gær með sigri á Maxime Vachier-Lagrave (2860), Hikaru Nakamura (2829) og Ding Liren (2836). Nakamura vann Ding í gær eftir bráðabana í gær. 
Nakamura, Carlsen og Caruana eru efstir og jafnir með 13 stig. Ding Liren hefur 12 stig.
Sjöunda og síðasta umferð fer fram í dag. Hún fer fram í heilu lagi. Carlsen teflir við Ding Liren, Nakamura við MVL, Caruana mætir Anish Giri (2731) og ungstirnið Alireza Firouzja teflir við Nepo.
Nánar á Chess24.
Taflmennskan hefst kl. 14 alla daga. Tímamörkin eru 15+10.
- Auglýsing -
















