Magnús var þjáður í bakinu - en hann lét það ekki trufla sig of mikið.

Magnús Carlsen lét ekki smá bakmeiðsli trufla sig of mikið í sjötta og næstsíðasta einvíginu gegn Hikaru Nakamura. Hann vann 3-1 sigur og jafnaði þar með metin í þriðja sinn! Lokaeinvígið fer fram í dag og hafa skákáhugamenn einn dag til að hvíla sig fyrir næstu veislu sem hefst á laugardaginn!

Nánar um gang mála í gær á Chess24.

 

Tefldar eru fjórar atskákir (15+10). Ef jafnt þá eru tefldar tvær hraðskákir (5+3). Ef enn jafnt þá er tefldur bráðabani (hvítur hefur fimm mínútur og en svartur fjórar) þar sem svörtum dugar jafntefli til sigurs.

- Auglýsing -