Skákþing Akureyrar hófst í gær. Keppendur eru 18 og tefla í tveimur flokkum. Úrslit í A-flokki:

Sigurður Eiríksson-Rúnar Sigurpálsson              0-1

Karl Egill Steingrímsson-Hjörleifur Halldórsson    1/2

Andri Freyr Björgvinsson-Stefán G. Jónsson         1-0

Gunnlaugur Þorgeirsson-Eymundur Eymundsson         frestað.

Sigurvegari í A-flokki verður Skákmeistari Akureyrar árið 2021. Fráfarandi meistari er Andri Freyr Björgvinsson, en stigahæsti keppandinn að þessu sinni er Rúnar Sigurpálsson, Akureyrarmeistari árið 2019.

Keppendur í B-flokki eru allir á grunnskólaaldri og tefla um tvo meistaratitla, í unglingaflokki (f. 2005-2009) og í barnaflokki (f. 2010 og síðar).

Úrslit fyrstu umferðar í B-flokki (fæðingarár í sviga)

Tobias Matharel(2009)-Brimir Skírnisson(2009)                  1-0

Markús Orri Óskarsson(2009)-Mikael Máni Jónsson(2007)          1-0

Gunnar Logi Guðrúnarson(2009)-Sigþór Árni Sigurgeirsson(2011)  0-1

Emil Andri Davíðsson(2009)-Alexía Lív Hilmisdóttir(2011)       1-0

Jökull Máni Kárason(2010)-Jóhann Valur Björnsson(2008)         1-0

Í báðum flokkum tefla allir-við-alla, sjö umferðir í A-flokki og níu í B-flokki.

Sjá má úrslit og röðun í öllum umferðum á Chess-results.com:

A-flokkur

B-flokkur

Önnur umferð verður tefld fimmtudaginn 4. febrúar og hefst kl. 18.00.

Af heimasíðu SA.

- Auglýsing -