Rúnar er sigursæll á mótum fyrir norðan.

Skákum dagsins á skákþinginu er nú lokið. Í A-flokki beindist athylgin helst að skák þeirra Andra Freys og Rúnars, sem segja mátti að væri úrslitaskákin í baráttunni um meistarartitilinn, enda höfðu báðir keppendur unnið allar sínar skákir og í raun stungið keppinauta sína af. Rúnar stendur því með pálmann í höndunum; þeir félagar eru reyndar jafnir að vinningum, en Rúnar á óteflda skák við Stefán til góða.

Úrslit í A-flokki

  • Andri-Rúnar         0-1
  • Gunnlaugur-Karl     0-1
  • Eymundur-Sigurður   1/2
  • Stefán-Hjörleifur   1-0

Ólíklegt er að nokkur komist upp á milli fráfarandi meistara (Andra) og meistara ársins þar á undan (Rúnars), en flesti hinna keppendanna eiga enn möguleika á þriðja sætinu, þótt líklega standi Stefán þar best að vígi.

Chess-Results.

B-flokkur:

Í B-flokki halda Markús og Tobias forystunni og bendir margt til þess að þeir komi jafnir í mark. Tobias vann toppslaginn við Mikael eftir harðar sviptingar.  Aðrar skákir voru tíðindaminni.

Úrslit í B-flokki:

  • Brimir-Markús       0-1
  • Tobias-Mikael       1-0
  • Sigþór-Jóhann       0-1
  • Alexía-Jökull Máni  0-1
  • Emil-Gunnar Logi    frestað

Forystusauðirnir hafa nú 6,5 vinning eftir sjö umferðir og eru í harðri baráttu um sigurinn. Mikael kemur næstur með 5 vinninga og Sigþór hefur 4.

Chess-Results.

Næsta umferð í báðum flokkum verður á sunnudag og hefst kl. 13. Öll úrslit, stöðuna og næstu viðureignir má finna á chess-results. 

Af heimasíðu SA.

- Auglýsing -