Smári Sigurðsson varð héraðsmeistari HSÞ 2021 í skák í dag en mótið fór fram á Húsavík. Smári fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Sigurður Eiríksson vann alla sína andstæðinga og mótið sjálft þar með, en þar sem hann keppti sem gestur á mótinu gat hann ekki unnið til verðlauna. Sigurður Daníelsson varð annar með 5 vinninga og Tómas Veigar Sigurðarson þriðji með 4 vinninga.

Tveir nýliðar, Húsvíkingurinn Hilmar Freyr Birgisson og Ólafur Ingvi Sigurðsson úr Þistilfirði, voru að taka þátt í sínu fyrsta alvöru skákmóti og gekk þeim vel. Hilmar Freyr fékk 3 vinninga og Ólafur Ingvi 1 vinning. Gamla kempan Sigurjón Benediktsson tók líka þátt í sínu fyrsta skákmóti í mjög langan tíma. Mótið á chess-results.

Nánar á heimasíðu Goðans. 

 

- Auglýsing -