Önnur umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 15 í dag. Hart var barist í gær engri skák lauk með jafntefli. Það má gera ráð fyrir að hörkuviðureignum í dag en þá mætast meðal annars Jóhann Hjartarson og Hjörvar Steinn Grétarsson og Bragi Þorfinnsson og Helgi Áss Grétarsson.
Pistill Björns Þorfinnssonar á Vísi um fyrstu umferð.
Viðureignir dagsins:
- Jóhann Hjartarsson (1) – Hjörvar Steinn Grétarsson (1)
- Bragi Þorfinnsson (1) – Helgi Áss Grétarsson (1)
- Björn Þorfinnsson (1) – Hannes Hlífar Stefánsson (0)
- Guðmundur Kjartansson (0) – Sigurbjörn Björnsson (0)
- Vignir Vatnar Stefánsson (0) – Alexander Oliver Mai (0)
Skákvarpið
Vefútsending hefst kl. 15 og skákskýringar Ingvars Þórs Jóhannessonar á milli 16:00 og 16:30.
Umfjöllun Ingvars um skák dagsins í gær
Kópavogur, Arion banki, Brim og Teva styðja á myndarlegan hátt við mótshaldið.
Helstu tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (heimasíða)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- Beinar útsendingar (Followchess)
- Beinar útsendingar (Chessbomb)
- Auglýsing -















