Omar Salama og Hjörvar Steinn á skákstað.

Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson varð að gera sér jafntefli að góðu í fyrri skák sinni gegn hvít-rússneska stómeistarnum Kirill Stupak (2485) á Heimsbikarmótinu í skák.

Hjörvar beitti óvænt kóngspeðinu í fyrsta leik, 1.e4 og upp kom armenska afbrigðið í franskri vörn. Hjörvar virtist fá nokkuð þægilegri stöðu og hafði nokkra stöðuyfirburði. Hvít-rússinn náði að verjast vel og á tímabili virtist hann jafnvel vera að snúa taflinu sér í hag en þá fann Hjörvar nokkra góða leiki og virtist jafnvel eiga sigurmögulega í lokin.

Skákin er skýrð hér:

Hægt er að fara yfir skákina hér einnig:

Hjörvar hefur svart í seinni skákinni sem hefst á morgun, þriðjudag,  klukkan 12:00. Skilji þeir jafnir þar verður bráðabani á miðvikudaginn þar sem tefldar eru at- og hraðskákir til þrautar.

Ingvar Þór Jóhannesson verður með Skákvarpið. Gera má fyrir að hann byrji á milli 13 og 14.

Lítið var um óvænt úrslit í fyrri skákum þessarar fyrstu umferðar enda styrleikamunur nokkuð mikill á köflum. Sterkustu skákmenn mótsins sitja yfir í fyrstu umferð og koma inn í aðra umferð. Komist Hjörvar áfram mætir hann hinum rússneska Maxim Matlakov (2688) og gangi allt upp gæti Hjörvar mætt Magnus Carlsen í fjórðu umferð!

- Auglýsing -