Eftir FIMM ár og níu daga tókst Magnus Carlsen loks að vinna sigur í klassískri skák í heimsmeistaraeinvígi! Eins og þekkt er orðið var allt einvígið (12 skákir) gegn Fabiano Caruana jafnteflisskákir og fyrstu fimm skákirnar í Dubai enduðu einnig með jafntefli. Það þarf semsagt að fara aftur í einvígi Carlsen við Sergey Karjakin árið 2016 til að finna síðustu sigurskákina!
Skákin reyndist algjör maraþonskák, hvorki fleiri né færri en 136 leiki þurfti til hjá Carlsen og yfir sjö og hálf klukkustund við borðið! Í fyrsta skipti frá því biðskákir hættu tefldu keppendur fram yfir miðnætti á mótsstað! 136 leikir eru met í heimsmeistaraeinvígi en fyrra metið voru 124 leikir í skák Karpov og Korchnoi árið 1978.
Polgar sýnir okkur hér hversu seint á ferðinni lok skákarinnar voru!
Game 6
What an amazing fight it was!
7 hours and 40 minutes. Huhhh… It was the longest game of world championship match history with its 136 moves.😉#FIDEMatch2021 #CarlsenNepo pic.twitter.com/vIl7NQ0bea— Judit Polgar (@GMJuditPolgar) December 3, 2021
Carlsen sneri aftur til drottningarpeðsins með 1.d4 í fyrsta leik, væntanlega dauðfeginn að glíma ekki enn eina ferðina við Petroff vörn. Ian Nepomniachtchi breytti aðeins leikjaröðinni hjá sér úr 2. skákinni með því að leika 2…d5 í stað 2…e6 og Carlsen kom e.t.v. eitthvað á óvart með 3.g3. Engu að síður fékk Carlsen tækifæri á að fá sömu stöðu og í 2. skákinni með því að leika 6.c4. Carlsen lék hinsvegar 6.b3 sem kom nokkuð á óvart.
Tíundi leikur Carlsen 10.Rbd2 hlýtur svo að hafa komið Rússanum í opna skjöldu. Í þriðja skiptið í einvíginu bauð Carlsen upp á peðsfórn. Í þetta skiptið hafnaði Nepo fórninni og skákin hélt áfram. Vafalítið hefur Carlsen haft eitthvað í pokahorninu ef Nepo hefði tekið peðið á b3.
Þrátt fyrir að það hafi verið Carlsen sem kom á óvart brást Nepo vel við og virtist ef eitthvað er jafnvel fá mögulega örlítið betra eftir byrjunina. Staðan var þó alltaf í dýnamísku jafnvægi en fyrsta alvöru augnablikið var þegar Carlsen bauðst að skipta drottningu fyrir tvo hróka.
Carlsen þáði þetta boð Nepo. Þeir David Howell og Simon Williams hjá Chess24 höfðu þetta að segja um augnablikið:
Is this the moment we were all waiting for? Carlsen gives up his queen on move 26 for two rooks and an unbalanced position. "The computer may say 0-0, but this is anything but a draw right now," says GM David Howell. #CarlsenNepo #FIDEMatch2021 #c24live https://t.co/95hMInBd7Y pic.twitter.com/wAf2k9vVlr
— chess24.com (@chess24com) December 3, 2021
Fljótlega eftir kaupin fékk Magnus „tölvutækifæri“
Í stöðunni gat Magnus leikið 33.Hcc2! sem er ótrúlegur leikur en líklega utan hæfileikasviðs flestra skákmanna af holdi og blóði! 33…Bxa3 34.Rf4 Dxb4 35.Hd7 eini leikurinn og hvítur fær óstöðvandi kóngssókn. Magnus einfaldlega játaði á blaðamannafundi að þetta hefði ekki hvarflað að honum. Þess í stað lék hann 33.Hd1 sem var í raun slakur leikur en dramatíkin hélt áfram, nú var það Nepomniachtchi sem missti af vænlegu framhaldi!
Það var engin ástæða fyrir svart að taka ekki peðið á b4 með 35…Bxb4, þess í stað lék Nepo 35…e5 og hafnaði einnig að taka peðið eftir 36.Hc2 en þá var 36…Bxb4 aftur á boðstólnum. Nepo valdi 36…Dd5 baráttan hélt áfram.
Tölvurnar telja hvítan komin með öll færin eftir 38…e4? Magnus tefldi framhaldið rétt en missti svo af vinningnum
40.Rxe4? gerir skákin að baráttuskák aftur, ótrúlegt en satt missir Magnus AFTUR af sterkum hróksleik á c2 reitnum. 40.Hdc2! var málið. Hvítur drepur næst á a4, vinnur svo biskupinn og með gott skjól fyrir kónginn eiga hrókarnir að geta unnið peð sem skilur hvítan eftir með unnið peðsendatafl. Ótrúlegar sviptingar! Kannski enn ótrúlegra að ballið var rétt að byrja!
52…De4 var gagnrýndur þar sem hvítur fær nú kost á að fá a3 peðið á góðum kjörum. Með öll peðin á kóngsvæng er hvítur tilbúinn að tefla með hrók og riddara gegn drottningu. Framhaldið varð 53.Hxa3 Dxh4+ 54.Kg1 De4 tefldist áfram. Í rannsóknum Surya Sekhar Ganguly og Judit Polgar kom ótrúlegt afbrigði. 54…Dh3 55.Ha7!? Bxg3 56.fxg3 Dxg3+ 57.Kf1 Dxe3 58.Hxf7+ Kg8. Hér hefði hvítur átt ótrúlegan leik sem á skilið stöðumynd
59.Hg7!! og hvítur vinnur útaf riddaragaffli á f5!
Áfram tefldist og klassískur Carlsen svíðingur virtist vera í kortunum með langri og erfiðri skák fyrir Nepo.
Lykilstaða kom aftur upp í 80. leik. Svartur hótar drápi á e3. Hvítur getur ekki valdað þar sem svartur drepur samt á e3 og annar hvor hrókurinn verður oní. Carlsen fann eina rétta leikinn, 80.Hxf7!
"He's played it!" With time running out, Carlsen finds Rxf7. What a moment! #c24live #FIDEMatch2021 #CarlsenNepo pic.twitter.com/SmUZ12ZtR1
— chess24.com (@chess24com) December 3, 2021
Endataflið leit út fyrir að vera unnið á hvítt, það var eins og hann hlyti að geta ýtt peðunum og einhvern veginn forðast þráskákir. Sannleikurinn reyndist annar þegar Nepomniachtchi þvingaði peðakaup og við gátum loks rýnt í Lomonosov gagnagrunnana þar sem aðeins voru 7 menn eftir á borðinu. Eftir 115…Dxh4 er staðan fræðilega jafntefli!

Sem betur fer hélt þessa epíska skák áfram og þar sem skák er barátta tveggja mannshuga mun sá sem hefur meiri baráttuvilja og þrek oft hafa betur!
Í 130. leik komu loks mistökin!
130…De6? er ekki réttur leikur! Aðeins 130…Db1 eða 130…Dc2 halda jafntefli.

Carlsen gerði engin mistök og eftir 36.Rg7 á hvíti kóngurinn greiða leið á g8 reitinn ef svartur skákar og e-peðið rennur upp, hreint magnað!
Loks kom fyrsta uppgjöf þessa heimsmeistaraeinvígis.
The moment Carlsen strikes the first blow of the 2021 #FIDEMatch2021: "There we go, we have it, a handshake!" Wow, what a game! And there's applause in the auditorium after that epic. #CarlsenNepo #c24live pic.twitter.com/FgiYwds2Fr
— chess24.com (@chess24com) December 3, 2021
Magnus var skiljanlega í skýjunum!
Moments after the game.
📷 by David Llada #CarlsenNepo pic.twitter.com/PdhuXKMtnp
— International Chess Federation (@FIDE_chess) December 3, 2021
Mögnuð skák sem margir hafa tjáð sig um. Anand hafði þetta að segja
Nice words from Anand, after an epic game of chess. #CarlsenNepo #FIDEmatch2021 #Chess pic.twitter.com/z3Ijw2lDjn
— ‘Chess to Impress’ on YouTube (@Gold_Chess) December 3, 2021
Sjá nánar frétt á Chess.com.
Hér er skákin í heild með skýringum Azerska stórmeistarans Nijat Abasov.
Sjöunda skákin er á morgun og verður fróðlegt að sjá hvernig Nepo bregst við eftir þetta erfiða tap!
- Heimasíða einvígisins
- Beinar útsendingar (FIDE) – Anand og Muzychuk
- Beinar útsendingar (Chess24) Polgar og Giri
- Beinar útsendingar (Chess.com) Caruana og Yifan
- Beinar útsendingar (Chess24) Howell og Houska















