Þremenningarnir ungu hafa lokið leik á móti #2 í Serbíu. Lokaumferðin kláraðist í dag en ný mót hefjast á morgun, mánudag.
Vignir Vatnar Stefánsson „pulsaði“ sig út með jafnteflum í lokaumferðunum tveimur. Vignir náði ekki áfanga en er vonandi búinn að tefla sig í gang fyrir næsta mót.

Vignir endaði með 5 vinninga af 9 og tapaði 7 elóstigum á mótinu.
Alexander Oliver missti algjörlega flugið í seinni part móts eftir frábæra byrjun. Hann tapaði í lokaumferðunum í báðum skákum sínum.

Alexander endaði með 3 vinninga af 9 og tapar 27 elóstigum á mótinu.
Hilmir Freyr Heimisson átti ágætis endasprett og fékk 1,5 vinning úr 2 síðustu skákunum.

Hilmir endaði með 5 vinninga af 9 og tapaði 17 stigum á mótinu.
Þriðja mótið hefst á morgun, mánudag.
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results

















