Davíð Kjartansson

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2548) vann öruggan sigur á Skákþingi Reykjavíkur sem lauk í gær. Hlaut fullt hús. Davíð Kjartansson (2304) og Sigurbjörn Björnsson (2315) urðu í 2.-3. sæti. Þar sem Hjörvar hefur hvorki lögheimili í Reykjavíkur né er meðlimur í reykvísku félagi er Davíð, sem er meðlimur Íslandsmeistara Víkingaklúbbins, skákmeistari Reykjavíkur.

Benedikt Briem (2079) og Lenka Ptácníková (2173) urðu í 4.-5. sæti með 6 vinninga.

Hækkunarkóngur mótsins er Örvar Hólm Brynjarsson (+92). Eftirtaldir hækka um 20 skákstig eða meira.

Brynjarsson Orvar Holm 92
Hakonarson Sverrir 60
Helgadottir Idunn 53
Gudnyjarson Sigurdur Pall 47
Thorisson Bjartur 46
Briem Benedikt 43
Omarsson Adam 38
Skarphedinsson Ingvar Wu 32
Heidarsson Mikael Bjarki 32
Heidarsson Arnar Milutin 24
Omarsson Josef 22

 

Skákir mótsins

Chess-Results

- Auglýsing -