Rafíþróttir njóta sívaxandi vinsælda um allan heim. Nafnið vísar til þess að keppt er í ýmsum leikjum á netinu, jafnt tölvuleikjum sem og skák.
Ótvíræður kostur rafíþrótta er að þær eru óháðar landfræðilegum takmörkunum og því hafa sprottið upp ýmsar keppnir þar sem þátttakendur eru staðsettir út um allan heim. Pro Chess League á skákþjóninum Chess.com er ein slíkra keppna alls ekki sú eina.
Önnur slík keppni er Live Chess World League, sem þýða mætti sem Heimsdeildin í netskák. Eins og nafnið bendir til, þá tefla þar landslið hvaðanæva að úr heiminum. Að svo komnu er teflt í tveimur deildum, 1. deild sem er lokuð 10 liða deild þeirra bestu og svo 2. deild, en þar geta ný lið skráð sig til leiks og freistað þess að vinna sig upp.
Reglur keppninnar eru nokkuð flóknar, en í stuttu máli þá getur hvert land skráð eitt lið til keppni. Ekki er gerð krafa um þjóðerni keppenda, aðeins að þeir tefli fyrir eitt lið á hverju tímabili. Þá er gerð krafa um að öllum meðlimum hvers liðs sé heimilt að tefla í öllum viðureignum, með þeim fyrirvara þó að lið geta gert kröfu um lágmarksfjölda skáka sem keppendur þurfa að hafa teflt á netþjóninum Chess.com sem og að liðum er heimilt (og jafnvel skylt) að fjarlægja meðlimi sem hafa gerst brotlegir við reglur keppninnar.
Þetta fyrirkomulag þýðir að gjarnan er teflt á mjög mörgum borðum, jafnvel á annað hundrað líkt og gerðist í úrslitaviðureign Rússlands og Úkraínu á sunnudaginn.
Heimsdeildin í hraðskák 2018
Líkt og áður sagði er teflt í 10 liða lokaðri deild. Fyrst er teflt um réttinn til að keppa til úrslita, en efstu tvö liðin mætast í keppni um sæti í úrslitum. Liðin í 3. og 4. sæti tefla svo um réttinn til að tefla við liðið sem tapaði viðureign efstu tveggja. Nokkuð flókið en næsta mynd ætti að varpa betra ljósi á málið.
Rússland og Úkraína mættust í úrslitum annað árið í röð, en Rússland sigraði mjög örugglega á fyrsta keppnistímabilinu (2017). Áhugavert er að lið Úkraínu endaði „aðeins“ í þriðja sæti í keppninni sjálfri, en tókst að vinna sig upp í lokaslaginn um titilinn.
Úrslitakeppnin – 5 Íslendingar í liði Úkraínu
Úrslitin fóru fram s.l. sunnudag (19. ágúst). Ljóst var að Rússar yrðu afar erfiðir andstæðingar og því var öllu tjaldað til og nýir liðsmenn sóttir til að styrkja lið Úkraínu. Greinarhöfundur hefur teflt með liði Úkraínu undanfarna mánuði og óskuðu liðsstjórar eftir því að hann fengi fleiri Íslendinga til liðs við liðið fyrir lokaviðureignina. Niðurstaðan varð sú að þrír Íslendingar bættust í hópinn og til viðbótar hafði annar Íslendingur, FM Sigurbjörn Björnsson þegar teflt með liðinu og því tefldu fimm Íslendingar í lokaviðureigninni!
Alls var teflt á 163 borðum að þessu sinni sem er met í keppninni, en teflt var á 133 borðum í úrslitaviðureign sömu liða árið 2017.
Þátttakendur voru allt frá ofur sterkum stórmeisturum og titilhöfum yfir í byrjendur, en líkt og áður sagði er ekki heimilt að takmarka aðgang að keppninni með það að leiðarljósi að stilla upp sterkara liði. Allir fá að tefla (með fyrirvara um háttvísi o.s.frv.) sem þýðir að miklu máli skiptir að liðið búi yfir nægri breidd til að tefla á svo mörgum borðum. Liðsmönnum er raðað á borð með þeim einfalda hætti að stigahæsti maður hvers liðs er á 1. borði o.s.frv.. Lið Úkraínu sem mætti til leiks taldi alls um 240 keppendur, en Rússar mættu með 163 keppendur og það er því sú tala sem ræður borðafjölda.
Tefldar voru tvær 5+2 skákir og mættust keppendur á sömu borðum tvisvar með skiptum litum.
Keppnin var afar jöfn framan af, en lið Úkraínu náði góðu forskoti um miðbik viðureignarinnar og lét það aldrei af hendi. Niðurstaðan varð því sú að lið Úkraínu sigraði með 185,5 vinningum gegn 140,5 vinningum Rússa og náði því titlinum eftirsótta. Liðið er því heimsmeistari landsliða í netskák 2018!
Skoða má framvindu mótsins í eftirfarandi myndbandi:
Frammistaða Íslendingana var afar góð, en alls náðu þeir 7 vinningum í 10 skákum.
FM Sigurbjörn Björnsson 1-1
FM Davíð Kjartansson 2-0
FM Elvar Guðmundsson 1-1
CM Halldór Brynjar Halldórsson 1-1
Tómas Veigar Sigurðarson 2-0
Valdar skákir Íslendinganna
















