Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2534) hefur byrjað afar vel á alþjóðlegu móti Przeworsku í Póllandi. Hann hefur 4½ vinning að loknum 6 umferðum og er í 1.-2. sæti.

Tvær umferðir fóru fram í gær. Þá vann hann pólska alþjóðlega meistaranum Lukasz Liczerski (2439) en gerði jafntefli við úkraínska stórmeistarann Artem Omelja (2515).

Sjöunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 13. Þá teflir hann við pólska ungmennið og alþjóðlega meistarann Jonasz Baum (2409) sem er 18 ára gamall. Mótinu lýkur á sunnudaginn.

Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk þar sem meðalstign eru 2445 skákstig. Hannes er næststigahæstur keppenda.

- Auglýsing -