FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2352) er efstur með fullt hús á Skákþingi Garðabæjar að lokinni fjórðu umferð sem fram fór í gærkveldi.
Dagur vann Arnar Milutin Heiðarsson (2020) í gær. Arnar er í 2.-4. sæti ásamt Hjörvari Steini Grétarssyni (2563) sem vann Jón Eggert Hallsson (1724) og Lenku Ptácníková (2070) sem lagði son sinn, Adam Omarsson (1837), að velli í gær.
Fimmta umferð fer fram næsta mánudagskvöld. Þá mætast meðal annars Lenka-Dagur og Arnar Heiðar-Hjörvar
Alls taka 24 skákmenn þátt í mótinu.
- Auglýsing -

















