Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson er skákmeistari Garðabæjar 2022. Hann er einnig skákmeistari TG.
Hjörvar sigraði í einvígi þeirra Dags Ragnarssonar um titilinn sem haldið var í gærkvöldi.
Dagur dró um liti og byrjaði með hvítu mennina í fyrri atskákinni af tveimur og varð jafntefli í fyrri skákinni þar sem Hjörvar hafði að mati skákstjóra heldur rýmra tafl þangað til eftir sviptingar Dagur náði að brjóta sér leið inn í Kóngstöðu Hjörvars og fékk hartnær unnið. Hann var þó orðinn tímanaumur og fann ekki besta framhaldið og Hjörvar náði jafntefli.
Seinni skákin virtist aldrei almennilega spennandi. Hjörvar hafði hvítt og var með betra líklega alla skákina og endaði á að innbyrða sigur í skákinni og þar með einvíginu.
- Auglýsing -

















