
Evrópumót taflfélaga hófst í Mayrhofen í Austurríki í dag. Úrslit íslensku sveitanna voru í samræmi við það sem stigin gáfu til kynna. Stigahærri sveitirnar unnu en þær stigalægri. Jóhann Hjartarson hélt auðveldlega jafntefli gegn Vishy Anand.

Víkingaklúbburinn tefldi á fyrsta borði við rúmensku sveitina Superbet. Þrátt fyrir jafntefli Jóhanns þá steinlágu Víkingarnir ½-5½ fyrir ofurveðjurunum frá Rúmeníu.

Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélag Akureyrar mættust í fyrsta Íslendingaslag mótsins og vonandi þeim síðasta. Svo fór að TR hafði öruggan, 4½-1½, sigur á Norðanmönnum. Andri Freyr Björgvinsson vann Ingvar Þór Jóhannesson og Áskell Örn Kárason gerði jafntefli við Þröst Þórhallsson.

Fjölnir rúllaði upp belgískri sveit.


Taflfélag Garðbæjar tekur þátt í kvennaflokki og tapaði fyrir enskri sveit. Lenka Ptácníková gerði jafntefli á fyrsta borði.

Önnur umferð fer fram á morgun. Þá teflir TR við afar sterka slóvenska sveit sem er sú fjórða sterkasta á pappírnum.
Fyrir utan íslensku liðin teflir svo Óskar Bjarnason með sveit frá Lúxemborg.

- Heimasíða mótsins
- Facebook-síða – myndir (Fiona)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur) – hefjast kl. 12
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur) – hefjast kl. 12















