Það var mikið fjör og stemning í gærkvöldi á Barion Mosó þegar fyrsta mótið í Barion mótaröðinni sem Chess After Dark standa fyrir fór af stað.
Um er að ræða fimm mót sem fara fram á Barion og taka 12 efstu þátt í lokamóti sem fram fer í haust með rosalegum verðlaunum.
42 skákmenn tóku þátt á fyrsta mótinu og er ljóst að baráttan um efstu 12 sætin verður afar hörð.
Fóru leikar þannig að efstir og jafnir með 8.5v af 11 mögulegum voru Bragi Þorfinnsson og Vignir Vatnar Stefánsson.
Tefldu þeir bráðabanaskák (Armageddon) þar sem Vignir hafði sigur.

Í þriðja sæti var Hjörvar Steinn Grétarsson með 8 vinninga.
Í humátt á eftir með 7.5v af 11 í 4.-7. sæti voru Ingvar Þór Jóhannesson, Guðmundur Kjartansson, Björn Þorfinnsson og Dagur Ragnarsson.
Aukaverðlaunahafar:
- U2000: Aasef Alashtar
- U1600: Halldór Kristjánsson
CAD bræðrum fannst afar gaman að sjá hvað keppendalistinn var góð blanda af bestu skákmönnum landsins sem og öðrum skemmtilegum keppendum og má þar m.a nefna knattspyrnumanninn Ragnar Sigurðsson.
Fjögur af fimm bestu mótunum gilda svo það er enn möguleiki fyrir þá sem ekki tóku þátt í gærkvöldi!
Sjáumst 7.febrúar
Bestu kveðjur,
CAD bræður
















