Smári skákmeistari Goðans 2022. Mynd: Heimasíða Goðans.

Ákveðið hefur verið að halda Skákþing Goðans/Meistaramót 2023 helgina 20-22 janúar á Húsavík. Til stóð að halda mótið helgarnar 13-15 og 20-21 janúar, en nú hefur verið horfið frá því, þar sem útlit var fyrir dræma þátttöku. Í samráði við þegar skráða keppendur, var því ákveðið að færa mótið til 20-22 janúar. Mótinu var jafnframt breytt í 5 umferða swiss mót með 60 mín umhugsunartíma og 30 sek í viðbótartíma á hvern leik. Mótið verður reiknað til kappskákstiga FIDE.

Dagskrá: (með fyrirvara um leiktíma Íslands á HM)

1. umferð föstudaginn 20 janúar kl 19:30
2. umferð laugardaginn 21 janúar kl 10:00
3. umferð laugardaginn 21 janúar kl 13:30
4. umferð sunnudaginn 22 janúar kl 10:00
5. umferð sunnudaginn 22 janúar kl 13:30

Ísland spilar væntanlega í milliriðli á HM í handbolta þessa helgi og á leika 20 og 22 janúar. Nákvæmir leiktímar liggja ekki fyrir en hugsanlegt en hugsanlegt er að breyta þurfi dagskrá mótins og hnika umferðum til. Leiktímar á HM ættu að liggja fyrir snemma í næstu viku og þá er hægt að taka endanlega ákvörðun um nákvæmar tímasetningar á öllum umferðunum.

Mótið er opið öllum áhugasömum sem eru með minna en 2400 skákstig og er ókeypis í það. Einungis innvígðir félagsmenn Goðans geta unnið til verðlauna.

Skárningarfrestur í mótið rennur út á hádegi föstudaginn 20 janúar og verður þá hægt að para í 1. umferð upp úr því. Ekki verður hægt að skrá sig í mótið eftir þann tíma. Skráning fer fram á lyngbrekku@simnet eða í síma 8213187.

Mótið á chess-results.

Skákþing Goðans/Meistaramót fer nú fram í 20 skiptið og er það langlífasta skákmót Goðans frá upphafi. Smári Sigurðsson er núverandi Skákmeistari Goðans en Rúnar Ísleifsson hefur oftast unnið titilinn eða 5 sinnum alls. Báðir verða þeir með í mótinu í ár.

Meistaramót Goðans – Skákþing   
2004 Baldur Daníelsson
2005 Ármann Olgeirsson
2006 Ármann Olgeirsson
2007 Smári Sigurðsson
2008 Smári Sigurðsson
2009 Benedikt Þorri Sigurjónsson
2010 Rúnar Ísleifsson
2011 Jakob Sævar Sigurðsson
2012 Rúnar Ísleifsson
2013 Smári Sigurðsson
2014 Jakob Sævar Sigurðsson
2015 Rúnar Ísleifsson
2016 Sigurður Daníelsson    
2017 Tómas Veigar Sigurðarson
2018 Tómas Veigar Sigurðarson
2019 Rúnar Ísleifsson
2020 Rúnar Ísleifsson
2021 Jakob Sævar Sigurðsson
2022 Smári Sigurðsson
2023  ?

- Auglýsing -