Rúnar er sigursæll á mótum fyrir norðan.

Lokaumferð 86. Skákþings Akureyrar var tefld í gær. Úrslit urðu þessi:

Rúnar-Helgi Valur 1-0
Smári-Áskell 1-0
Sigurður-Eymundur 1-0
Tobias-Stefán 0-1
Reynir-Markús 0-1
Arnar Smári-Sigþór 1-0
Valur Darri-Skotta 1-0

Þetta er þriðja árið í röð sem Rúnar hreppir Akureyrarmeistaratitilinn. Áskell gat veitt honum keppni ef honum fipaðist í síðustu skákinni, en það var þó aldrei líklegt. Áskell mátti hinsvegar játa sig sigraðan af Smára eftir afar fjöruga og tvísýna skák.

Lokastaðan (efstu menn:)
Rúnar Sigurpálsson 6,5 (af 7)
Áskell Örn Kárason 5
Sigurður Eiríksson 5
Smári Ólafsson 4,5
Stefán G Jónsson 4

Lokastöðuna má finna á Chess-results.

Það gleður okkur að stigalausu keppendurnir, Helgi Valur, Reynir og Valur Darri, eiga nú allir möguleika á að komast inn á stigalista FIDE.

Næsta mót verður fimmtudagskvöldið 23. febrúar, hraðskákmót sem er liður í mótaröðinni á vormisseri.

Af heimasíðu SA

- Auglýsing -