Stórmeistarinn Vignir Vatnar í samstarfi við Snóker&Pool í Lágmúla blæs til hraðskákmóts laugardaginn 31. október næstkomandi. Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og mótið reiknað til hraðskákstiga. Mótið hefst klukkan 18:00 og S&P er staðsett í Lágmúla 5.
Frábær verðlaun í boði á mótinu! Efsti stigalausi, U-1700 og U-2000 ásamt hefðbundnum topp-3. Góð tilboð á barnum og skákstemmning frameftir!
Aðeins er pláss fyrir 32 keppendur á mótinu og mótið er aðeins fyrir 18+
Þátttökugjald er 3.000 kr.
Einungis er hægt að greiða með millifærslu. Áskrifendur VignirVatnar.is fá frítt á mótið.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Reikningsnúmer: 0517-14-002912, kennitala: 421026-1570


















