Kópavogsmót grunnskólasveita í skák fór fram í fyrsta sinn miðvikudaginn 14. október í Stúkunni við Kópavogsvöll. Skákdeild Breiðabliks stóð fyrir mótinu og bauð öllum grunnskólum í Kópavogi að senda sveitir. Sex skólar þáðu boðið og alls mættu 24 sveitir, um hundrað krakkar, til leiks þrátt fyrir gula veðurviðvörun um morguninn.
Teflt var í tveimur flokkum, 1.–4. bekk fyrir hádegi og 5.–10. bekk eftir hádegi. Fjórir eru í hverri sveit, umhugsunartími var fjórar mínútur á mann með einnar sekúndu viðbót á leik og samanlagðir vinningar sveitarinnar réðu röðinni.
1.–4. bekkur: Vatnsendaskóli vann allar viðureignir
Átta sveitir tefldu fimm umferðir í yngri flokknum. Vatnsendaskóli var í sérflokki, vann allar fimm viðureignir sínar og tapaði aðeins einni og hálfri skák af tuttugu.

Lokastaða
- Vatnsendaskóli – 18,5 vinningar af 20 mögulegum
- Hörðuvallaskóli A – 11,5 vinningar
- Lindaskóli – 11 vinningar
- Hörðuvallaskóli D – 10,5 vinningar
- Hörðuvallaskóli B – 10 vinningar
- Álfhólsskóli A – 7,5 vinningar
- Álfhólsskóli B – 7 vinningar
- Hörðuvallaskóli C – 4 vinningar
Hörðuvallaskóli A tryggði sér annað sætið með sigri á Álfhólsskóla B í lokaumferðinni, og Lindaskóli vann sína síðustu viðureign 4–0 og skaust í þriðja sætið.


5.–10. bekkur: Álfhólsskóli A ósigraður
Sextán sveitir tefldu fjórar umferðir í eldri flokknum, þar af níu frá Hörðuvallaskóla einum. Álfhólsskóli A vann þrjár viðureignir 4–0 og gerði jafntefli við Lindaskóla í þriðju umferð í viðureign sem réði úrslitum um sigurinn. Lindaskóli varð annar, einum vinningi á eftir, og Álfhólsskóli B þriðji.

Lokastaða
- Álfhólsskóli A – 14 vinningar af 16 mögulegum
- Lindaskóli – 13 vinningar
- Álfhólsskóli B – 11 vinningar
- Vatnsendaskóli B – 10 vinningar
- Kársnesskóli – 10 vinningar
- Vatnsendaskóli A – 10 vinningar
- Kóraskóli – 8 vinningar
- Hörðuvallaskóli A – 7,5 vinningar
- Hörðuvallaskóli I – 7 vinningar
- Hörðuvallaskóli C – 7 vinningar
- Hörðuvallaskóli F – 6,5 vinningar
- Hörðuvallaskóli B – 6 vinningar
- Hörðuvallaskóli D – 6 vinningar
- Hörðuvallaskóli E – 5 vinningar
- Hörðuvallaskóli H – 4,5 vinningar
- Hörðuvallaskóli G – 2,5 vinningar
Kársnesskóli, Kóraskóli, Vatnsendaskóli og Hörðuvallaskóli áttu einnig sveitir í eldri flokknum. Hörðuvallaskóli sendi flesta keppendur allra skóla til leiks, alls þrettán sveitir í báðum flokkum samanlagt.


Skákæfingar í Kópavogi
Skákdeildir Breiðabliks og HK halda úti skákæfingum fyrir alla aldurshópa í Kópavogi, og öll sem tóku þátt í mótinu eru velkomin að prófa.
Skákdeild HK í Kórnum, beint eftir skóla, steinsnar frá Hörðuvallaskóla og Kóraskóla. Skráning á abler.io/shop/hk.
Hópur Dagar Tími
1.–3. bekkur Þriðjudagar og miðvikudagar 14:00–15:00
4.–7. bekkur Miðvikudagar og föstudagar 15:00–16:00
Skákdeild Breiðabliks í Stúkunni við Kópavogsvöll. Skráning á xps.is/shop/breidablik.
Hópur Dagar Tími
1.–3. bekkur Mánudagar 16:30–17:30
1.–3. bekkur Laugardagar 10:00–11:00
4.–7. bekkur Þriðjudagar 17:00–18:30
4.–7. bekkur Fimmtudagar 17:30–19:00
4.–7. bekkur Föstudagar 17:00–18:30
Framhaldshópur, lengra komin 5.–10. bekkur Mánudagar og miðvikudagar 17:30–19:00
Framhaldshópur, lengra komin 5.–10. bekkur Föstudagar 17:00–18:30
8. bekkur og eldri Laugardagar 11:00–12:30
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Briem, yfirþjálfari, í síma 615 6007 eða á briembenni@gmail.com.
Öll úrslit eru á chess-results.com:
- 1.–4. bekkur
- 5.–10. bekkur
Ljósmyndir: Skákdeild Breiðabliks.


















