Sunnudagskvöldið 2. apríl fór fram stærsta alþjóðlega hraðskákmót sem fram hefur farið á Íslandi! 180 skákmenn hófu leik í Hörpunni sem eru hreint ótrúlegar tölur.
Úr varð jafnt og skemmtilegt mót með góðri stemmningu. CAD sá um rekstur mótsins og eins og oft áður virðist allt sem þeir snerta verða að gulli, allavega fer þetta hraðskákmóti í sögubækurnar.
Baráttan á toppnum var hörð og miklar sviptingar urðu í lokin. Stórmeistararnir Aryan Tari, Luke McShane, V Pranav og Maxime Lagarde voru meirihluta mótsins í toppbaráttu en gaman var að sjá Vigni Vatnar blanda sér í toppbaráttuna.
Hér er lykilskák úr 8. umferðinni þar sem Vignir Vatnar mætti Norðmanninum Aryan Tari.
Á endanum hafði Aryan Tari sigur á mótinu, fékk 8 vinninga af 9 mögulegum og varð jafn V Pranav. Jafnir í 3-4. sæti komu svo Vignir Vatnar Stefánsson og Maxime Lagarde.

Mótið á Chess-Results















