Séð yfir keppnissalinn. Mynd: Halla

Níunda og síðasta umferð Reykjavíkurkákmótsins sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims hefst kl. 11 í dag.

Fimm skákmenn eru efstir og jafnir með 6½ vinning. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2510) er efstur íslenskra skákmanna með 6 vinninga. Hann mætir ungverska stórmeistaranum Tamas Banusz (2616).

Pörun 9. umferðar

Skákskýringar hefjast kl. 13.

 

- Auglýsing -