Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið, Reykjavik Open, klárast í dag og í tilefni af því verður blásið til lokaveislu í beinni útsendingu á Visir.is og Stöð 2. Útsláttarhraðskáksmót sem ber yfirskriftina Ísland gegn áhrifavöldunum og hefst útsendingin klukkan 15.30.
Fjórir íslenskir keppendur, þar á meðal nýjasti stórmeistari Íslands, munu berjast á banaspjótum í útsláttarmóti gegn fjórum þekktustu skákáhrifavöldum heims sem njóta gríðarlegra vinsælda á heimsvísu.
Keppendur eru eftirfarandi:
Hjörvar Steinn Grétarsson, stórmeistari
Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari
Hilmir Freyr Heimisson, alþjóðlegur meistari
Aleksandr Domalchuk-Jonasson, FIDE-meistari
Simon Williams, stórmeistari frá Englandi
Eric Rosen, alþjóðlegur meistari frá Bandaríkjunum
Anna Cramling, FIDE-meistari kvenna, Svíþjóð
Alexandra Botez, FIDE-meistari kvenna, Kanada
Engin fríðindi fyrir titla
Mótið er með einvígisfyrirkomulagi og er óvenjulegt að því leyti að keppendur munu draga númer frá 1 -8 í byrjun viðburðarins. Sá sem dregur nr.1 mun tefla tveggja skáka útsláttareinvígi gegn nr.2 og svo framvegis. Á slíkum mótum er yfirleitt tryggt að þeir sterkustu mætast helst síðast en á þessu móti er ekkert slíkt titlatog. Þeir sterkustu geta vel mæst í fyrstu umferð mótsins með tilheyrandi blóðbaði.
Verði einvígin jöfn eftir tvær skákir þá verður tefld svokölluð Armageddon-skák þar sem að sá sem hefur hvítt verður að vinna skákina, annars fellur viðkomandi úr leik.
Njóta ótrúlegra vinsælda
Erlendu keppendurnir eru eins og áður segir í hópi vinsælustu skákáhrifavalda, eða skákstreymara heims. Sérstaklega gildir það um Önnu Cramling og Alexöndru Botez. Þær hafa streymt skákum sínum frá Reykjavík Open í beinni útsendingu á Twitch-síðum sínum og hafa áhorfendur verið á bilinu 10 – 20 þúsund á hverjum tíma á rásum þeirra sem eru ótrúlegar tölur.















