Þeir félagar Ding Liren og Ian Nepomniachtchi er hreinlega að heilla skákáhugafólk upp úr skónum með mögnuðu heimsmeistaraeinvígi. Eftir sex einvígisskákir er staðan jöfn 3-3 og aðeins tvær skákanna hafa endað með jafntefli!

Algjört „blow for blow“ einvígi.

Ding Liren kom vel á óvart í dag og ég held að hér sé farið með rétt mál en það má endilega leiðrétta ef það er ekki rétt….en London byrjunin eða „London-system“ eins og flestir kalla það hefur ALDREI verið notað áður í heimsmeistaraeinvígi. London menn um allan heim fögnuðu í dag og þar var vafalítið fremstur í flokki Þór Valtýsson sem er frumkvöðull á Íslandi í notkun á þessari frábæru byrjun!

Ding lék 5.Rbd2 sem er nýjasta nýtt í London tískunni. Flest Chessable námskeið mæla með þessum leik sem kemur í veg fyrir 5.c3 Db6 6.Db3 c4 sem er talið fínt á svart.

Ding Liren er með Lo
Ding Liren er með London tískuna á hreinu!

Ding leitaði á svörtu reitina í miðtaflinu og skildi í raun svarta biskupinn eftir án skotmarks. 18.Ha3!? var athyglisverður leikur, undirbýr annaðhvort Hb3 með árás á b7 eða í einhverjum tilvikum b4 og svo Rb3-c5. Bent Larsen átti svipaða hugmynd í gamalli London system skák.

Ding vann peð og tölvurnar töldu 29. leik Dings mjög snjallan. Riddarann á d6 má ekki taka vegna Hxe8 og drottningin fellur.

Nepo reyndi að sækja mótspil með a-peði sínu en Ding byggði upp óstöðvandi kóngssókn.

Ding hótaði á einum stað Arabíu mátinu svokallaða.

Hefði Nepo leikið hér 38…a3?? í stað 38…Kh8. Hefði Ding vafalítið svarað umsvifalaust með Dxg7+ og mátið er óverjandi.

Stutta skýringu á Arabíu mátinu má sjá hér að neðan:

@thechessviking

Arabian Mate – Checkmate Patterns #Chess #Checkmate #PatternRecognition #ChessPunks #ChessTactics #Tactics #ChessTok #ArabianMate #ChessMaster

♬ original sound – The Chess Viking – The Chess Viking

Í kjölfarið kom 41.d5 hjá Ding, enn einn flottur leikurinn, Anand var hrifinn!

Hugmyndin með leiknum kemur eiginlega í ljós í lokastöðunni:

Reyni svartur að styðja a-peðið t.d. með 44…Db2 kemur 45.Dxg8!! og hvítur mátar, 45…Kxg8 46.Ha8+ Kf7 og 47.Hf8#

Peðið á d5 valdar undankomureitinn á e6!

Skákin

Einkunnabókin

 

Það er erfitt að halda ekki með Ding, góður strákur sem passar vel upp á mömmu sína!

Engilsaxneskar vídeó skákskýringar:

- Auglýsing -