Skákþingi Norðlendinga er nú nýlokið. Þórleifur Karlsson, sem hafði vinningsforystu þegar tvær umferðir voru eftir var heldur ófarsæll í lokaumferðunum og tapaði báðum skákum sínum. Elsa María Kristínardóttir vann hinsvegar báðar skákir sínar og mótið sjálft með sjö og hálfum vinningi af níu. Hún varð jöfn Stefáni Bergssyni, hinum brottflutta, en aðeins hærri á stigum, enda vann hún innbyrðis skák þeirra eftir að hafa varist vel í lakari stöðu. Þórleifur hafnaði svo í þriðja sæti með sex og hálfan vinning. Alls skráðu sig 32 keppendur til leiks og má sjá lokastöðuna hér á Chess-Results, svo og öll úrslit í einstökum skákum.
Þessi sigur Elsu Maríu er sögulegur, enda hefur það aldrei gerst fyrr að kona hafi hampað þessum titli sem teflt hefur verið um ÁRLEGA frá árinu 1935. Sumsé 88 sinnum hefur karl unnið, en nú var komið að konunum!
Skrásetjara grunar að þetta sé einn stærsti, ef ekki sá allra stærsti sigur sem kona hefur unnið á móti sem opið er öllum kynjum.
Þessum viðburði lauk svo að venju með hraðskákmóti. Þar fékk hinn brottflutti Stefán Steingrímur átta vinninga af níu, en Þóleifur og Áskell Örn Kárason komu næstir honum með sjö vinninga. Þórleifur hafði betur eftir oddastigaútreikning og er því Hraðskákmeistari Norðlendinga þetta árið. Keppendur voru 23.
Lokastaðan á Chess-Results.
















