Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson tapaði sinni fyrstu skák á Benidorm Chess Open 2026 í dag. Helgi hafði unnið sex fyrstu skákir sínar og sat einn í efsta sætinu. Rússinn Baturin-Vongradov náði að leggja Helga að velli í dag.
Helgi tefldi djaft með svörtu gegn Rússanum unga og gaf mikil færi á sér. Ákveðin ögrun oft í byrjanataflmennsku Helga með svörtu en það hefur gefið vel það sem af er móti. Rússinn ungi lét hinsvegar ekki slá sig út af laginu í dag. Hvíta staðan varð fljótt betri og Helgi þurfti að fara í mikinn skotgrafarhernað til að reyna að halda taflinu gangandi. Sá rússneski fann sterka leiki og knésetti okkar mann að þessu sinni og opnaði toppbaráttuna upp á gátt.
Eftir þessi góðu úrslit hefur Helgi enn 6 vinninga en nú af 7 mögulegum og er jafn Miroslav Baturin-Vinograd (2216) í efsta sætinu. Sá rússneski fær erfiða pörun með svörtu gegn Babu Lalith, reyndum inverskum stórmeistara. Helgi hefur hvítt gegn spænskum CM og á möguleika á að endurheimta efsta sætið óskipt.
- Beint á Lichess
- Paranir og staða.
Um mótið:
Helgi er með 2405 Elo-stig og er fjórði í styrkleikaröð A-flokksins. Fyrir ofan hann eru rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca (2507), Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500) og Indverjinn Lalit Babu M R (2489).
Benidorm Chess Open fer fram dagana 25. október til 1. nóvember á Hotel Meliá Benidorm. Tefldar eru níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörkin 90 mínútur á skákina auk 30 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Mótið er FIDE-reiknað og gefur möguleika á alþjóðlegum áföngum.
Mótinu er skipt í tvo meginflokka. Open A er ætlaður skákmönnum með yfir 1800 Elo-stig en Open B er fyrir keppendur undir 2000 stigum. Heildarverðlaunafé mótshátíðarinnar er rúmlega 25 þúsund evrur.
Helgi teflir að sjálfsögðu í sterkari flokknum og er einn af fjórum stigahæstu keppendum mótsins.
Fyrsta umferðin fór fram í gær 25. október en önnur umferð hófst nú rétt áðan.
Dagskrá mótsins er þétt:
- 25. október kl. 17:30 – 1. umferð
- 26. október kl. 16:30 – 2. umferð
- 27. október kl. 10:00 – 3. umferð
- 27. október kl. 16:30 – 4. umferð
- 28. október kl. 16:30 – 5. umferð
- 29. október kl. 16:30 – 6. umferð
- 30. október kl. 16:30 – 7. umferð
- 31. október kl. 16:30 – 8. umferð
- 1. nóvember kl. 9:30 – 9. og síðasta umferð


















