Nú eru þrjár vikur þangað til Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótið hefst í Skjólbrekku í Mývatnssveit. 33 keppendur eru nú þegar skráðir til leiks og er reiknað með að þeim eigi eftir að fjölga nokkuð.
Sel Hótel er því miður fullbókað og Skútustaðir Gistiheimil líka, en það eru margir aðrir gistimöguleikar í Mývatnsveit og nágrenni, en enginn þeirra í göngufæri við mótsstaðinn Skjóbrekku.
Hótel Laxá er í 3.5 km fjarlægð frá Skjólbrekku. Þar er talsvert laus af herbergjum 19-22 nóvember
Eldá gistiheimili í Reykjahlíð en þar eru herbergi laus
Mývatn – Berjaya Iceland Hotels er einnig í Reykjahlíð og þar eru laus herbergi umrædda daga.
Hlíð Hostel er í nálægð þorpsins í Reykjahlíð og þar er eitthvað laust af herbergjum.
Framangreindir gististaðir eru í 15-20 km fjarlægð frá Skjólbrekku. Áhugasamir um þátttöku í mótinu eru því hvattir til að bóka gistingu sem fyrst

















