Í gær fór fram sterkt hraðskákmót samhliða alþjóðlega mótinu á Benidorm. Íslenski stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson var meðal þátttakenda og gaf sér þar stund milli stríða en Helgi er einmitt einn efstur á aðalmótinu.

Helgi var í efsta sæti fyrir lokaumferðina með 5,5 vinning af 6 mögulegum og mætti þar spænska stórmeistaranum Jose Carlos Ibarra Jerez en tapaði eftir hörkubaráttu. Þrátt fyrir tapið hlaut Helgi brons á þessu atskákmóti. Flestir sterkustu keppendur á Benidorm mótinu voru með og eins var gaman að sjá gamla brýnið James Plaskett meðal þátttakenda.

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn