Í fyrradag hófst TePe Sigeman & Co skákmótið í Malmö í Svíþjóð. Áhugavert mót en hvert ár taka átta skákmenn þátt og yfirleitt er keppendalistinn afar áhugaverður.
Svo er einnig nú en meðal keppenda eru goðsagnirnar Boris Gelfand og Peter Svidler. Indversku ungstirnin Arjun Erigaisi og Gukesh. Þjóðverjinn ungi, Vincent Keymer, Hollendingurinn Jordan Van Foreest, yngsti stórmeistari allra tíma, Abhimanyu Misra og svo heimamaðurinn og stjarna síðasta Reykjavíkurskákmóts Nils Grandelius.
Gukesh er efstur með fullt hús eftir tvær umferðir. Nils, Svidler og Misra hafa 1½ vinning.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
- Beinar lýsingar
- Chess-Results
- Auglýsing -















