Vignir að tafli

Hinn nýbakaði Íslandsmeistari, Vignir Vatnar Stefánsson, mun tefla klukkufjöltefli sem hefst kl. 14 á  morgun, föstudag, í Opnu húsi  sem Skákskólans stendur yfir allan júní. Tímamörk verða 90 30 og þátttakendum er skylt að skrifa niður skákirnar. Börn og unglingar sem sótt hafa námskeið Skákskólans á haust- og vorönn eða hafa teflt í mótum á vegum skólans eru hvött til að mæta og tefla við kappann. Ekkert gjald er tekið fyrir.

Opna hús Skákskólans hófst 1. júní sl. og munu standa út júnímánuð frá kl. 13-17 alla virka daga.  Staðið hafa vaktina Birkir Ísak Jóhannsson og Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands. Börn og unglingar sem hafa áhuga á að auka við styrk sinn eru hvött til að mæta og gæti fjölteflið við Vigni  Vatnar gæti verið góð byrjun. Stefnt er að því að hafa fjöltefli við kunnan meistara hvern föstudag.

- Auglýsing -