Ægisgata 2
900 Vestmannaeyjabær
Ísland
Á árinu 2023 verða liðin 50 ár frá upphafi og lokum eldgossins á Heimaey 1973. Taflfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið með stuðningi bæjaryfirvalda að halda atskákmót í Vestmannaeyjum að þessu tilefni, laugardaginn 9. september 2023.
50 ára goslokamótið hefst kl. 12.00 á hádegi laugardaginn 9. september nk. og fer það fram við glæsilegar aðstæður í opna rýminu í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2. Beddamótið maí 2019 og Pallamótið í júní 2021 fóru fram á þessum sama stað.
Tefldar verða 8 umferðir eftir atskákformi, 15. mín. á skák og + 5 sek á leik. Eftir fjórar umferðir verður tekið kaffihlé og síðan taka við aðrar fjórar umferðir. Reiknað er með að mótinu ljúki um kl. 18.00 síðdegis, úrslit kynnt og veitt vegleg verðlaun. Ekkert mótsgjald eða greiðslur fyrir veitingar í neysluhléi. Allir velkomnir.
Skráning og nánari upplýsingar um mótið verða auglýstar þegar nær dregur.
Herjólfur mun sigla sjö ferðir á dag milli lands og Eyja þegar mótið fer fram. Fyrir þá sem ætla að dvelja daginn í Eyjum er hægt að fara kl. 10.45 í 40 mín. siglingu frá Landeyjahöfn til Eyja (mæting 30 mín. fyrir brottför) og frá Eyjum að loknu móti kl. 19.30 um kvöldið. Einnig siglir Herjólfur frá Landeyjahöfn kl. 08.15 um morguninn og kl. 22.00 frá Eyjum. Aðeins fimm mín. gangur frá Herjólfi að mótsstað. Fyrir þá sem ætla að dvelja lengur í Eyjum er nægt gistirými , fjölbreytt flóra matsölustaða og margt að skoða.
Taflfélag Vestmannaeyja









