Það var þokkalegur dagur hjá íslensku keppendunum í České Budějovice, aðeins ein tapskák í opna flokknum og svo gerði Hilmir jafntefli í sinni skák í GM flokknum. Hallgerður tapaði í lokaumferðinni á Korsíku en hlaut flokkaverðlaun engu að síður. Josef Omarsson hóf leik í Serbíu og Guðmundur og Hannes hefja taflmennsku á morgun á Spáni.

Vignir Vatnar Stefánsson (2487) er aftur orðinn efsti Íslendingurinn eftir sigur í umferð dagsins. Vignir mætti Tékkanum Ondrej Matras (2185) með svörtu og tefldi aftur Benkö bragð, línuna með …e6 sem hann einmitt mælir með og skýrir vel út á VignirVatnar.is

Vignir fékk smá frumkvæði en hvítur fórnaði peði til baka og upp kom endatafl sem hlytur að vera jafntefli með bestu taflmennsku. Vignir sýndi hinsvegar fínan baráttuvilja og „stórmeistaratækni“ og yfirspilaði þann tékkneska í endataflinu…eða þá að hann yfirspilaði sjálfan sig.

Vignir hefur 5,5 vinning af 7 mögulegum og mun vafalítið reyna að kroppa í efstu menn í lokaumferðunum.

Alexander Oliver Mai (2137) tapaði á móti Tékkanum David Hak (2203) í umferð dagsins. Alexander fékk flotta stöðu á svart úr mótteknum drottningarbragði. Kannski full flott stöðu því honum varð hálf brátt í brók og 15. leikur svarts …g5 var skelfilegur. Hvítur vann skiptamun og eftirleikurinn reyndist auðveldur.

Alexander hefur því 4 vinninga af 7.

Benedikt Briem (2127) tefldi við Tékkan Jan Slampa (2227). Sá var þegar særður eftir viðureign við Alexander og hann tapaði líka á móti Benedikt. Í samtali við Skak.is var Benedikt ánægður með skákina og vildi jafnvel ganga svo langt að kalla þetta „módel skák“

Benedikt er þá kominn í 5 vinninga eftir umferðirnar 7.

Bárður Örn Birkisson (2199) og David Kolka (1938) voru einnig með 4 vinninga fyrir umferðina. Þeir mættust innbyrðis. Af virðingu við skákgyðjuna Caissu verður sú skák ekki birt hér. Þeir félagar sættust á skiptan hlut í ótefldri skák. Þeir hafa báðir 4,5 vinning að loknum umferðunum sjö.

Björn Hólm Birkisson (2137) gat náð þeim en varð að sættast við skiptan hlut gegn Irenu Hartlein (1951) frá Póllandi. Björn hafði vissulega skiptamun betur en svartur hafði tvö peð upp í þannig að jafnt var í raun á liði. Björn hefur 4 vinninga.

Aron Þór Mai (2037) gerði sitt þriðja jafntefli í röð en hann er lentur í U2000 móti Tékka. Að þessu sinni fékk hann Martin Rybacek (1786) og lenti í frekar þekktu trikki, Rxc3 og Bxc4 í kóngsindverjastöðu með skiptum litum. Svartur fékk mun betra og hartnær unnið en lék svo skelfilega af sér og Aron fékk vinningsstöðu en áttaði sig ekki á hvað staðan var góð og þrálék.

Chess-Results

Beinar útsendingar

Hilmir Freyr Heimisson (2404) mætti FIDE meistaranum Ondrej Svanda (2390) frá Tékklandi. Hilmir stýrði svörtu og stóð lengst af nokkuð höllum fæti, á tímapunkti var staða hans mjög krítísk. Hilmir náði þó að redda sér fyrir horn er andstæðingur hans bauð jafntefli í mislitum biskupum. Ondrej hafði þó peði meira og samstæð frípeð og vekur ögn furðu að hann skyldi ekki reyna eitthvað að vinna.

Chess-Results

Beinar útsendingar

Hallgerður að tafli fyrr í mótinu

Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1942) lauk keppni á Korsíku í dag. Hún tapaði í lokaumferðinni gegn Alexndre Houhou (2095). Um skákina sagði Hallgerður að hún hefði verið spennandi skák úr Caro-Kann þar sem hún hafði umframpeð en andstæðingurinn sterkt frípeð. Í tímahraki missti Hallgerður stjórnina og varð að játa sig sigraða.

Hallgerður endaði með 4 vinninga af 9 og hlaut 2. verðlaun í sínum stigaflokki!

Gamla brýnið Michal Krasenkow (2524) frá Póllandi varð hlutskarpastur með 7 vinninga af 9 ásamt Úkraínumanninum Li Min Peng (2535)

Heimasíða mótsins

Chess-Results

Beinar útsendingar (efstu borð)

Josef Omarsson að tafli á NM fyrr á árinu.

Josef Omarsson (1710) hóf taflmennsku í Paracin í Serbíu í dag, Josef er númer 131 af 132 keppendum í styrkleikaröð og ljóst að hann fær mikla og góða reynslu úr þessu móti. Hann mætti Svartfellingnum Igor Vujacic (2145) og tapaði.

Chess-Results

Hannes gegn Guðmundi á Íslandsmótinu nú í ár

Þeir félagar Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) hefja svo leik á morgun, laugardag í opnu móti í Valencia á Spáni.

Chess-Results

 

 

 

 

- Auglýsing -