Guðmundur Kjartansson heldur góðum dampi á opna mótinu í Valencia. Guðmundur hefur unnið allar fjórar skákir sínar til þessa á mótinu. Hannes Hlífar Stefánsson vann sína skák og hefur 3 vinninga. Josef tapaði í Serbíu.

Þeir félagar Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) sitja báðir að tafli í Valencia á Spáni þessa dagana. Guðmundur hafði 3/3 fyrir umferðina en Hannes 2/3 eftir klaufalegt tap í gær.
Guðmundur mætti spænska alþjóðlega meistaranum Antonio Granero Roca (2314). Það er einmitt þrjóturinn sem datt í lukkupottinn gegn Hannesi í gær. Guðmundur kom fram hefndum fyrir okkar mann. Spánverjinn lék af sér manni í miðtaflinu og eftirleikurinn var auðveldur.
Hannes lagði Spánverjann Nieves Sanleon Pravisano (2058). Skák Hannesar var ekki í beinni útsendingu.

Josef Omarsson (1710) mætti CM Blaz Debevec (2077) frá Slóveníu og tapaði sinni skák.















