Jólahraðskákmót TR

    0
    528
    Hvenær:
    28. desember, 2023 @ 19:30 – 22:00
    2023-12-28T19:30:00-01:00
    2023-12-28T22:00:00-01:00
    Hvar:
    TR
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Gauti Pall Jonsson
    6919937
    Jólahraðskákmót TR @ TR | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið fimmtudaginn 28. desember og hefst taflið klukkan 19:30. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3 mínútur á skák auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (3+2). Teflt verður í húsnæði TR að Faxafeni 12. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Mótið kemur í stað hefðbundins fimmtudagsmóts.

    Þátttökugjald er 1.000.- (greiðist með reiðufé á staðnum eða innlögn á reikning félagsins). Frítt er fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning á staðnum.

    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Sigurvegari Jólahraðskákmótsins 2022 var Lenka Ptácníková.

    Mótið er eitt af elstu skákmótum á vegum TR, haldið síðan 1961.

    Fyrri sigurvegarar

    - Auglýsing -