Setja í mitt dagatal
Hvenær:
28. desember, 2023 @ 19:30 – 22:00
2023-12-28T19:30:00-01:00
2023-12-28T22:00:00-01:00
Hvar:
TR
Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland
Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland
Tengiliður:

Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið fimmtudaginn 28. desember og hefst taflið klukkan 19:30. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3 mínútur á skák auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (3+2). Teflt verður í húsnæði TR að Faxafeni 12. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Mótið kemur í stað hefðbundins fimmtudagsmóts.
Þátttökugjald er 1.000.- (greiðist með reiðufé á staðnum eða innlögn á reikning félagsins). Frítt er fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning á staðnum.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Sigurvegari Jólahraðskákmótsins 2022 var Lenka Ptácníková.
Mótið er eitt af elstu skákmótum á vegum TR, haldið síðan 1961.
- Auglýsing -











